15.01.21
Fréttir
Rýming á Seyðisfirði í varúðarskyni
// english // polish //
Lögreglustjórinn á Austurlandi, í samráði við Veðurstofu Íslands og ríkislögreglustjóra, hefur ákveðið að rýma neðangreind svæði á Seyðisfirði vegna úrkomuspár. Rýmingu skal lokið í kvöld kl. 22. Talsverðri úrkomu er spáð á Seyðisfirði frá miðnætti í nótt og á laugardag. Úrkoman byrjar eftir kl. 19 í kvöld og ákefð eykst svo skömmu eftir miðnætti. Draga á aftur úr úrkomu eftir kl. 18 á laugardag.