Fara í efni

Fjárhagsáætlun

Sveitarstjórn samþykkir árlega fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og samhliða henni einnig þriggja ára áætlun sem tekur til næstu þriggja ára. Í fjárhagsáætlun koma fram áætlaðar tekjur og heimildir til útgjalda til einstakra mála og málaflokka í rekstri sveitarfélagsins. Um gerð fjárhagsáætlunar fer samkvæmt ákvæðum 63.-65. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Undirbúningur að gerð fjárhagsáætlunar næsta árs hefst að vori í fastanefndum sveitarfélagsins. Í kjölfar tillagna frá nefndum samþykkir bæjarráð fjárhagsramma fyrir nefndirnar til þess að laga sig að og gera tillögur að áætlun sinna málaflokka. Að þessu ferli loknu leggur bæjarráð heildstæða fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn til staðfestingar fyrir 1. nóvember. Áætlunin er tekin fyrir á tveimur fundum bæjarstjórnar og samþykkt að lokinni síðari umræðu með þeim breytingum sem á henni kunna að hafa verið gerðar. Fjárhagsáætlun skal þannig afgreidd fyrir 15. desember.

Fjárhagsáætlanir Múlaþings

Fjárhagsáætlun Múlaþings 2025 - 2028 - seinni umræða 11.12.2024

Fjárhagsáætlun Múlaþings 2024 - 2027 - seinni umræða 13.12.2023

Fjárhagsáætlun Múlaþings 2023-2026 - seinni umræða 14.12.2022

Fjárfestingar Múlaþings 2023 - 2032 - stóru verkefnin

Fjárfestingar Múlaþings 2023 - 2032  

Fjárhagsáætlun Múlaþings 2022-2025   - seinni umræða 8.12.2021

Fjárhagsáætlun Múlaþings 2021-2024 - seinni umræða 9.12.2020

Fjárhagsáætlanir Djúpavogshrepps 2020 og eldri

Fjárhagsáætlanir Fljótsdalshéraðs 2020 og eldri

Fjárhagsáætlanir Seyðisfjarðarkaupstaðar 2020 og eldri

Síðast uppfært 04. mars 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd