22.10.20
Fréttir
Tilkynning frá aðgerðastjórn almannavarna - HAUSTFRÍ Í SKÓLUM
Á næstu dögum hefst haustfrí í skólum, frí sem fjölskyldur nota gjarnan til ferðalaga til höfuðborgarinnar eða annarra landshluta. Slíkt kærkomið frí hittir samfélag okkar nú á sérlega viðkvæmum tíma. Því beinir aðgerðastjórn almannavara á Austurlandi máli sínu sérstaklega til foreldra og forráðamanna og hvetur fjölskyldur til að verja vetrarfríinu heima á Austurlandi og blanda saman inniveru og útivist til hvers konar leikja og virkrar samveru.