Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi, Bláargerði 28, 700

Málsnúmer 202410225

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Múlaþings - 30. fundur - 15.11.2024

Fyrir liggur umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir parhúsi.
Byggingarleyfi var gefið út dags. 12.11.2024.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 137. fundur - 13.01.2025

Skipulagsfulltrúi situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur umsókn um frávik frá skipulagsskilmálum á lóðinni Bláargerði 28 (L210981) á Egilsstöðum þar sem fyrirhugað er að reisa parhús með bílskúrum sem standa munu 2,5m út fyrir byggingarreit til suðurs, í átt að innkeyrslu á lóðinni.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að víkja frá kröfum 1. og 2. mgr. sömu greinar um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu vegna fyrirliggjandi umsóknar. Er það gert með vísan til þess að um svo óveruleg frávik sé að ræða í þessu tilviki að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

Gestir

  • Sigríður Kristjánsdóttir
Getum við bætt efni þessarar síðu?