Fara í efni

Flokkun úrgangs

Megnið af þeim úrgangi sem verður til eru verðmæti, sem hægt er að endurvinna eða endurnýta.

Að mörgu þarf að huga við flokkun. Oft er vandasamt að finna út úr hvaða flokki úrgangurinn tilheyrir enda erum við með ógrynni ólíkra efna í kringum okkur. Mikilvægt er að hreinsa umbúðir vel áður en þær rata í flokkunartunnur, bæði til að fyrirbyggja ólykt og auðvelda fyrir endurvinnslu. Eins er mikilvægt að fara með rúmfrekan úrgang á söfnunar- eða móttökustöðvar svo hann taki ekki pláss í tunnum og fái viðeigandi meðhöndlun.

Markmiðið er að láta sem minnst fara í urðun. Tökum höndum saman um að vernda umhverfið og standa saman að förgun á sem hagkvæmastan hátt.

Leiðbeiningarnar hér fyrir neðan eru almennar en ekki tæmandi.

Sorpílát við heimili

Á hverju heimili er fjórum úrgangsflokkum safnað matarleifum, pappír og pappa, plasti og blönduðum úrgangi.

Matarleifar

Í tunnuna má fara: Ávextir og ávaxtahýði- og börkur – grænmeti og grænmetishýði – egg og eggjaskurn – kjöt- og fiskafgangar – mjöl – hrísgrjón og pasta – brauð og kökur – mjólkurvörur og grautar – kaffifilterar – kaffikorgur – tepokar - tannstönglar og hnífapör úr tré - eldhúsbréf – munnþurrkur - servíettur – korktappar – laufblöð af pottaplöntum – afskorin blóm

Ekki setja í tunnuna*: Allt plast þar með talið lífplast – Tyggjó – stóra kjöthluta (lambalæri eða stærra) – kattasand og dýrasaur – grófan garðaúrgang – bómull og eyrnapinnar - bökunarpappír og muffinsbréf – pappaumbúðir með plasthúð – popppokar – ryksugupokar – bleyjur – tebréf eða kaffihylki úr plasti eða áli - tannbustar úr tré

*Efni sem eru ekki lífræn eiga ekki heima í tunnu fyrir matarleifar. Einnig umbúðir sem eru merktar niðurbrjótanlegar (t.d. lífplast) þar sem þær brotna ekki nægjanlega hratt niður í iðnaðarjarðgerð og henta því ekki í moltu. Sláturúrgangur og fiskihrat frá fyrirtækjum fer í sérstakan farveg.

Pappír og pappi

Í tunnuna má fara: Dagblöð – umslög – gluggaumslög – skrifstofupappír – bæklingar – hreinar og þurrar mjólkur- og drykkjarfernur – gjafapappír – eggjabakkar – post it miðar – morgunkornspakkar – klósettrúllur - millispjöld af vörubrettum – hreinlegir pizzakassar - pappakassar

Ekki setja í tunnuna: Samsettar umbúðir af pappa og plasti nema taka þær í sundur – óhreinan pappír – kassakvittanir – munnþurrkur og eldhúsbréf – bökunarpappír - gjafabönd

 

Plastumbúðir

Í tunnuna má fara: Allar umbúðir úr plasti svo sem – plastpokar – plastbrúsar – plastdósir – plastfilma – plastbakkar – plastflöskur – plastlok og plaströr

Ekki setja í tunnuna: Samsettar umbúðir af plast og pappa nema taka þær í sundur - óhreint plast - lífplast – raftæki – blöðrur – gúmmí – frauðplast

 

Blandaður úrgangur

Í tunnuna má fara: Einnota bleyjur – tyggjó – blautþurrkur – dömubindi – ryksugupokar – plástrar – eyrnapinnar og bómullarskífur – svampar – límband – sellófan – bökunarpappír – kattasandur og dýrasaur – óendurvinnanleg kaffihylki – einnota grímur og hanskar – annar úrgangur sem er skítugur eða að öðru leyti óendurvinnanlegur

Ekki setja í tunnuna: úrgang sem er hægt að endurvinna – lyf og lyfjaumbúðir sem hafa verið í beinni snertingu við lyf (skilað í apótek)


Skilað á grenndarstöðvar

Sveitarfélögum er skylt að safna textíl, málmi og gleri á grenndarstöðvum, nánari upplýsingar um grenndarstöðvar

Málmumbúðir

Má setja: Niðursuðudósir – aðrar umbúðir úr málmi - málmlok af krukkum - sprittkertabikarar – álpappír t.d. af skyr- og jógúrtdósum – hefti – gormar – skrúfur - bréfaklemmur

Ekki setja: Samsettar umbúðir – óhreinar umbúðir – raftæki – rafhlöður – snakkpoka

 

Glerumbúðir

Má setja: Hreinar umbúðir úr gleri án loks eða tappa svo sem – krukkur – flöskur – kryddstaukar – aðrir ónýtir glermunir

Ekki setja: Postulín – leirvörur – lok af glerumbúðum – flísar – kristal – eldföst mót - rúðugler – speglar – ljósaperur

 

 

Textíll

Má setja: Fatnaður – lín – handklæði – áklæði – tuskur – dúkar – skór – gardínur – aðrar vefnaðarvörur

Ekki setja: Óhreinan föt eða textíl – sýnileikafatnað – húsgögn


Söfnunarstöðvar

Tekið er á móti ýmsum úrgangsflokkum á söfnunarstöðvum, sumir eru gjaldskyldir en aðrir gjaldfrjálsir, sjá nánari upplýsingar um söfnunarstöðvar.  

 

Spilliefni

Dæmi um spilliefni: Rafhlöður – lítil raftæki – prenthylki – úðabrúsar – ljósaperur – málning – leysiefni – rafgeymar – lyfjaleifar – kveikjarar


Skilagjaldsskyldar umbúðir

Dæmi um skilagjaldsskyldar umbúðir: flestar drykkjarumbúðir úr plasti, áli eða gleri, svo sem flöskur og dósir

Ekki er skilagjald á umbúðum fyrir: drykkjarþykkni– mjólkurdrykki – matarolíu – sósur – þvottaefni

Endurvinnslan hf. sér um móttöku á skilagjaldsskyldum umbúðum víða um land, frekari upplýsingar á endurvinnslan.is

Skilagjaldsskyldum umbúðum má einnig koma í söfnunargáma góðgerðar- og íþróttasamtaka, björgunarsveita eða Grænna skáta sem nýta ágóðann í starfsemi sína.

Úrgangsfróðleikur

Ýmsar hagnýtar upplýsingar um flokkun heimilisúrgangs má nálgast á vefsíðu Umhverfisstofnunar urgangur.is

Síðast uppfært 26. mars 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd