Fara í efni

Fundur ÖBÍ með Múlaþingi

Málsnúmer 202410085

Vakta málsnúmer

Samráðshópur Múlaþings um málefni fatlaðs fólks - 6. fundur - 12.02.2025

Fulltrúar ÖBÍ heimsækja Austurland og óska eftir fundi með samráðshóp málefna fatlaðs fólks ásamt aðgengisfulltrúa Múlaþings. Það helsta sem þeir vilja ræða er: Akstursþjónusta og ferðaþjónusta með tilliti til verkefnisins „Gott aðgengi í ferðaþjónustu“. Einnig verður til umfjöllunar úthlutun úr fasteignasjóði jöfnunarsjóðs og hvernig því hefur verið varið til að bæta aðgengi, hvernig aðgengisfulltrúi starfar og samstarf hans við notendaráð / samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks þakkar ÖBÍ fyrir fundinn og góðar umræður.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks beinir þeim tilmælum til allra nefnda sveitarfélagsins að senda hópnum erindi til umsagnar um atriði sem varða til dæmis skipulag, áætlanir og aðgengismál.

Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd