Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi, Lindarbrekka, 766,

Málsnúmer 202405061

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 118. fundur - 27.05.2024

Í upphafi máls vakti Eiður Gísli Guðmundsson athygli á mögulegu vanhæfi sínu og var tillaga þess efnis samþykkt samhljóða. Eiður vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi á jörðinni Lindarbrekka (L159117). Áformin eru í samræmi við Aðalskipulag Djúpavogshrepps 2008-2020 en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með hliðsjón af því ekki er líklegt að áformin hafi veruleg grenndaráhrif samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að falla frá grenndarkynningu og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Múlaþings - 30. fundur - 15.11.2024

Fyrir liggur umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi.
Byggingarleyfi var gefið út dags. 28.10.2024.
Getum við bætt efni þessarar síðu?