Fara í efni

Félagsmálanefnd

148. fundur 19. október 2016 kl. 12:30 - 15:30 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Sigrún Harðardóttir formaður
  • Jón Jónsson varaformaður
  • Benedikt Hlíðar Stefánsson aðalmaður
  • Ása Sigurðardóttir aðalmaður
  • Arnbjörg Sveinsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Frímannsdóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Frímannsdóttir félagsmálastjóri

1.Fjárhagsáætlun félagsþjónustu 2017

201610049

Fjárhagsáætlun ársins 2017 er lögð fram og samþykkt.

2.Starfsáætlun Félagsþjónustu 2017

201610050

Starfsáætlun félagsþjónustunnar fyrir árið 2017 tekin til umræðu. Nefndin felur starfsfólki að uppfæra starfsáætlun ársins 2016 og bæta þar inn ákveðnum markmiðum sem nefndin vill leggja áherslu á.

3.Yfirlit yfir stöðu launa árið 2016

201604110

Yfirlit yfir stöðu launa hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs fyrstu átta mánuði ársins lagt fram til kynningar. Útkomuspá sýnir að svo virðist sem launagreiðslur verði innan ramma fjárhagsáætlunar.

4.Reglur um félagslegt húsnæði 2016

201610048

Drög að reglum um félagslegt húsnæði lagðar fram og samþykktar. Einungis er um að ræða uppfærslu á fjárhæðum skv. reglugerð nr. 742/2016 frá Velferðarráðuneytinu.

Fundi slitið - kl. 15:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?