Fara í efni

Félagsmálanefnd

117. fundur 24. júní 2013 kl. 09:30 - 12:25 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Sigrún Harðardóttir formaður
  • Guðmunda Vala Jónasdóttir varaformaður
  • Baldur Pálsson aðalmaður
  • Halldóra Sigríður Árnadóttir aðalmaður
  • Guðrún Frímannsdóttir félagsmálastjóri
  • Arnbjörg Sveinsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Guðrún Frímannsdóttir félagsmálastjóri

1.Ósk Kvenfélagsins Bláklukku um fundaraðstöðu í Hlymsdölum

201305121

Erindi frá Kvenfélaginu Bláklukku á Fljótsdalshéraði tekið til umfjöllunar,en því var frestað á síðast fundi nefndarinnar eftir að Ólöf Ragnarsdóttir, formaður Kvenfélagsins og Karólína Ingvarsdóttir, gjaldkeri mættu á fundinn og gerðu grein fyrir erindinu. Ákveðið að vísa erindi kvenfélagsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.

2.Beiðni um umsögn vegna frjálsíþróttaskóla UÍA og UMFÍ

201306014

Í beiðni dagsettri 3. júní 2013 frá Barnaverndarstofu er óskað eftir umsögn félagsmálanefndar vegna frjálsíþróttaskóla UÍA og UMFÍ. Félagsmálanefnd sér sér ekki fært að veita umsögn í ofangreindu máli þar sem erindi Barnaverndarstofu barst Félagsþjónustunni það seint að ekki tókst að vinna málið áður en íþróttaskólinn hóf starfsemi sína og var lokið þegar nefndin fékk málið til umfjöllunar.

3.Launaáætlun fyrstu 5 mánuði ársins.

201306067

Launaáætlun félagsþjónustunnar fyrir fyrstu fimm mánuði ársins 2013 lögð fram til kynningar. Frávik í áætluninni má rekja til kostnaðar sem er tilkominn vegna langvarandi veikinda starfsmanna og aukninna þarfa fyrir félagslega heimaþjónustu á Fljótsdalshéraði.

4.Rammaáætlun Félagsþjónustunnar 2014

201306085

Rammaáætlun félagsþjónustunnar fyrir árið 2014 lögð fram til kynningar. Við umfjöllun bæjarráðs um áætlunina var gerð tíu milljóna króna hagræðingarkrafa. Nefndin felur formanni nefndarinnar og félagsmálastjóra að koma með tillögu að hagræðingu sem nemur áðurnefndri upphæð á næsta fund nefndarinnar.

5.Stefna og starfsáætlun Félagsþjónustunnar tekin til umræðu.

201306093

Stefna og starfsáætlun Félagsþjónustunnar tekin til umræðu. Formanni og félagsmálastjóra falið að hefja vinnu að starfsáætlun 2014.

6.Jafnréttismál

201303070

Sigrún Harðardóttir og Guðmunda Vala Jónasdóttir, fulltrúar Fljótsdalshéraðs í jafnréttisnefnd sátu fyrri hluta fundarins þegar fjallað var um jafnréttismál.
Áherslur í endurskoðaðri áætlun um jafnréttismál teknar fyrir og starfsmanni falið að kynna drög að uppfærðri áætlun á fundi nefndarinnar í september n.k.

Fundi slitið - kl. 12:25.

Getum við bætt efni þessarar síðu?