Fara í efni

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs

460. fundur 04. mars 2019 kl. 08:15 - 11:30 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Anna Alexandersdóttir formaður
  • Stefán Bogi Sveinsson varaformaður
  • Steinar Ingi Þorsteinsson aðalmaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
  • Hannes Karl Hilmarsson bæjarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Fundargerð 251. fundar Hitaveitu Egilsstaða og Fella

201903004

Lagt fram til kynningar.

2.Umsagnarbeiðni um frumvarp til laga um hollustuhætti og mengunarvarnir - 542. mál

201902142

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

3.Umsagnarbeiðni um tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi - 184. mál.

201902143

Lagt fram til kynningar.

4.Samráðsgátt - Frumvarp til nýrra laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla

201902138

Lagt fram til kynningar.

5.Niðurstöður könnunar um vinnuskóla fyrir ungmenni

201903007

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umhverfis- og framkvæmdanefndar og verkefnastjóra umhverfismála.

6.Íbúasamráðsverkefni sambandsins og Akureyrar

201903006

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að senda fulltrúa á kynningarfund um mögulega þátttöku í íbúasamráðsverkefni sem undirbúið hefur verið af Sambandi ísl. sveitarfélaga og Akureyrarbær, sem boðaður hefur verið 13. mars nk. í húsakynnum Sambandsins í Borgartúni.

7.Ísland ljóstengt

201709008

Til fundarins mættu Gunnar Jónsson formaður stjórnar HEF og Páll Breiðfjörð framkvæmdastjóri HEF til að kynna bæjarráði stöðuna í ljósleiðaravæðingu dreifbýlisins á Fljótsdalshéraði, en HEF hefur verið að vinna að áætlun að því verkefni fh. sveitarfélagsins.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi tilboð frá Fjarskiptasjóði, en frestur til að ganga frá því er til 8. mars.
Það er einnig skoðun bæjarráðs að HEF eigi að vera fyrsti kostur sem væntanlegur samstarfsaðili við lagningu ljósleiðara um dreifbýli sveitarfélagsins, samkvæmt umræddu tilboði frá Fjarskiptasjóði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Aðalfundur Ársala bs 2019

201902140

Lagt fram fundarboð á aðalfund Ársala, sem boðaður hefur verið þriðjudaginn 12. mars. Samþykkt að fela Birni Ingimarssyni umboð og atkvæði Fljótsdalshéraðs á fundinum.

9.Skipan starfshóps um húsnæði Egilsstaðaskóla

201902128

Bæjarráð fór yfir mögulega skipan hópsins og verður hann skipaður á næsta fundi bæjarráðs.

10.Fjármál 2019

201901002

Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri fór yfir nokkur mál tengd rekstri sveitarfélagsins og kynnti bæjarráði.
Einnig kynnti Björn Ingimarsson bæjarstjóri fundi sem samstarfsnefndin átti fyrir helgina í Reykjavík, með þingmönnum og fleiri aðilum.

11.Fundargerð 250. fundar Hitaveitu Egilsstaða og Fella

201903003

Lagt fram til kynningar.

12.Fundargerð 868. fundar Sambands íslenskra sveitafélaga

201902141

Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerð SvAust 26. febrúar 2019

201902139

Lagt fram til kynningar.

14.Fundagerðir Ársala bs 2019

201902137

Lagt fram til kynningar.

15.Aukaaðalfundur SSA

201901208

Lagt fram til kynningar.

16.Fundargerð 9. fundar svæðisskipulagsnefndar SSA - 11. febrúar 2019

201902129

Vegna liðar 1 í fundargerði svæðisskipulagsnefndar frá 11. febrúar, leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að hún samþykki breytta lýsingu svæðisskipulags Austurlands, sem tekur tillit til athugasemda Skipulagsstofnunnar.

17.Fundargerð 9. fundar stjórnar SSA - 19. febrúar 2019

201902127

Stefán Bogi fór yfir nokkur áhersluverkefni Sóknaráætlunar Austurlands á árinu 2019 og kynnti bæjarráði.
Fundargerðin lögð fram að öðru leyti.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?