Fara í efni

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs

322. fundur 14. desember 2015 kl. 09:00 - 11:30 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Gunnar Jónsson formaður
  • Anna Alexandersdóttir varaformaður
  • Stefán Bogi Sveinsson aðalmaður
  • Sigrún Blöndal áheyrnarfulltrúi
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Fjármál 2015

201501007

Ræddur mögulegur tímabundinn afsláttur af gatnagerðargjöldum á óbyggðum lóðum á tilteknum svæðum, þar sem eru fullfrágengnar götur með tilbúnum tengistútum.
Bæjarráð samþykkir að fela umhverfis- og framkvæmdanefnd að fara yfir málið og gera tillögur að mögulegri málsmeðferð.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Varðandi launagreiðslur til nefnda á næsta ári leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að fylgt verði meðaltalshækkun launa skv. kjarasamningum FOSA, líkt og verið hefur, en hækkunin taki gildi 1. janúar 2016.
Samþykkt samhljóða.

2.Fundargerð 42. fundar stjórnar Brunavarna á Austurlandi

201512059

Bæjarstjóri fór yfir málið og sagði frá fundi sem stjórn Brunavarna á Austurlandi sat nýlega með fulltrúum frá Mannvirkjastofnun.
Þar var niðurstaðan að brunavarnaáætlun yrði unnin áfram í samráði þessara aðila.

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

3.Menningar- og fræðslusetur í Læknishúsinu á Hjaltastað

201506108

Lagður fram tölvupóstur frá Hjörleifi Guttormssyni, dags. 9. desember 2015, með ósk um tilnefningu fulltrúa í samráðshóp vegna hugmynda um menningar- og fræðslusetur á Hjaltastað.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til atvinnu- og menningarnefndar til umfjöllunar.

4.Markaðsrannsókn á eldsneytismarkaðnum/Frummatsskýrsla

201512055

Beiðni samkeppnisstofnunar um álit við frummatsskýrslu um eldsneytismarkaðinn.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til atvinnu- og menningarnefndar til úrvinnslu.

5.Bæjarstjórnarbekkurinn

201512051

Farið yfir þau erindi sem bárust á bæjarstjórnarbekknum sem haldinn var í Barra sl. laugardag.
Bæjarstjóra falið að koma erindunum á framfæri við viðkomandi nefndir og starfsmenn.

Einnig lögð fram eftirfarandi vísa sem bæjarráði var afhent við það tækifæri.

Bæjarstjórnarbekkurinn
berst við röfl og tuð.
Krúttlegur Jólakötturinn
kemur þeim í stuð.

6.Jólaleyfi bæjarstjórnar og bæjarráðs 2015

201512052

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að jólaleyfi bæjarstjórnar verði frá og með 17. desember til og með 8. janúar.
Bæjarráð fari með fullnaðarafgreiðsluumboð á þeim tíma og verður kallað saman ef þurfa þykir. Næsti reglulegi fundur bæjarráðs er áformaður 11. janúar.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?