Fara í efni

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs

277. fundur 08. desember 2014 kl. 09:00 - 13:15 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Gunnar Jónsson formaður
  • Anna Alexandersdóttir varaformaður
  • Stefán Bogi Sveinsson aðalmaður
  • Sigrún Blöndal áheyrnarfulltrúi
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Húsráð félagsheimilisins Eiðum

201411140

Bæjarráð samþykkir að fela atvinnu- og menningarnefnd að taka málefni félagsheimilisins á Eiðum til skoðunar, til samræmis við verklagsreglur sveitarfélasins varðandi framtíðarstarfsemi félagsheimila frá 20. júní 2012.

2.Umdæmamörk sýslumanna og lögreglustjóra

201406037

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs tekur undur þá bókun bæjarráðs Fjarðabyggðar að mikilvægt sé að lögreglan á Hornafirði verði áfram hluti af umdæmi lögreglunnar á Austurlandi, líkt og verið hefur frá árinu 2007 þegar hún var sameinuð embætti sýslumannsins á Eskifirði. Reynslan af því samstarfi hefur verið góð. Ekki er forsvaranlegt að slíta í sundur nýtt embætti lögreglunnar á Austurlandi þegar ekki liggur fyrir fjárhagsleg greining á styrk þess. Ef til breytinga kemur verður að liggja fyrir að nýtt embætti lögreglustjóra á Austurlandi verði styrkt frekar til að það geti sinnt hlutverki sínu í framtíðinni. Þá er áréttað að sveitarfélagið Hornafjörður á enn samstarf með Austurlandi á ýmsum sviðum, samanber Vinnumarkaðsráði, Heilbrigðiseftirliti Austurlands, austurumdæmi Matvælastofnunar o.fl.

3.Frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (fasteignaskattur af atvinnuhúsnæði o.fl).

201412016

Lagður fram tölvupóstur frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 4. des. 2014 með beiðni um umsögn við frumvarpi til laga um tekjustofna sveitarfélaga (fasteignaskattur af atvinnuhúsnæði).

Bæjarráð mun ekki veita sérstaka umsögn um frumvarpið.

4.Frumvarp til laga um húsaleigubætur (réttur námsmanna)

201412009

Lagður fram tölvupóstur frá Velferðarnefnd Alþingis, dags. 2. des. 2014, umsagnarbeiðni vegna frumvarps til laga um húsaleigubætur (réttur námsmanna).

Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.

5.Frumvarp til laga um 40 stunda vinnuviku o.fl.(færsla frídaga að helgum)

201412002

Lagður fram tölvupóstur, dags. 28. nóv. 2014, frá velferðarnefnd Alþingis, með beiðni um umsögn við frumvarpi til laga um 40 stunda vinnuviku (færsla frídaga að helgum).

Bæjarráð mun ekki veita sérstaka umsögn um frumvarpið.

6.Frumvarp til laga um almannatryggingar

201411175

Lagður fram tölvupóstur frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 28. nóv. 2014, umsagnarbeiðni vegna frumvarps til laga um almannatryggingar (aldurstengd örorkuuppbót).

Bæjarráð mun ekki veita sérstaka umsögn um frumvarpið.

7.Tillaga til þingsályktunar um dag helgaðan fræðslu um mannréttindi barna.

201411173

Lagður fram tölvupóstur frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 27. nóv. 2014, með umsagnarbeiðni við tillögu til þingsályktunar um dag helgaðan fræðslu um mannréttindi barna.

Bæjarráð mun ekki veita sérstaka umsögn um frumvarpið.

8.Hátungur deiliskipulag

201411055

Fyrir liggur að umhverfis og framkvæmdanefnd hefur þegar samþykkt framlagða lýsingu vegna skipulagsáforma um deiliskipulag fyrir Hátungur Vatnajökulsþjóðgarði.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð framlagða lýsingu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að leita umsagna Skipulagsstofnunar og umsagnaraðila og kynna fyrir almenningi samkvæmt 30 gr. skipulagslaga.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Kröflulína III, aðalskipulagsbreyting

201301260

Farið yfir umræður á fundi með landeigendum á Jökuldal, þar sem fyrirhugðuð Kröflulína 3 mun liggja um skv. skipulagi.

Samþykkt að ýmis þau mál sem fram komu á fundinum verða rædd við væntanlegan framkvæmdaaðila. Sveitarfélagið mun einnig fara frekar yfir málið þegar umsókn um framkvæmdaleyfi liggur fyrir.

10.Leyfisveitingar vegna gistihúsarekstur.

201412018

Lagt fram erindi úr tölvupósti dags. 5. des. 2014, frá eigendum Tjarnarbrautar 5 Egilsstöðum, með spurningum vegna leyfisveitinga á gistihúsarekstri að Tjarnarbraut 7.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka saman drög að svörum og leggja þau fyrir fund bæjarráðs.

11.Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2014

201401038

Lagðar fram til kynningar, fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, nr. 17 frá 10. okt. 2014 og 18 frá 26. nóv. 2014.

12.Fjarskiptasamband í dreifbýli

201302127

Til fundarins kom Gunnar Þórhallsson frá fyrirtækinu Tengir á Akureyri, til að veita upplýsingar um uppsetningu fjarskiptaneta í dreifbýli og ræða þá möguleika sem eru til staðar í þeim málum á Fljótsdalshéraði. Guðmundur Davíðsson framkv. stjóri HEF var í símasambandi við fundinn og eins sat Haddur Áslaugsson umsjónarmaður tölvumála fundinn undir þessum lið

Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða nánar við fulltrúa Tengis um hugsanlega frumathugun á lagningu ljósleiðara um sveitarfélagið og kostnaðarmat á þeirri framkvæmd. Stefnt er að opnum fundi um fjarskiptasamband í sveitarfélaginu í janúar.




13.Samþykktir um gæludýrahald

201412001

Lagt fram erindi frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands ásamt drögum að breytingum um gæludýrahald.

Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umhverfis- og framkvæmdanefndar til meðferðar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

14.Beiðni um styrk vegna Eldvarnarátaksins 2014.

201412012

Lagt fram erindi úr tölvupósti dags. 1. des. 2014, frá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, með beiðni um styrk vegna eldvarnarátaks til grunnskólabarna og foreldra þeirra 2014.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til fræðslunefndar til afgreiðslu.

15.Viðtalsaðstaða fyrir rágjafa Vinnumálastofnunar.

201412008

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 2. des. 2014 um erindi til Sambandsins og afgreiðslu þess við beiðni Vinnumálastofnunar um stuðning sambandsins við því að sveitarfélögin láti Vinnumálastofnun í té aðstöðu fyrir rágjafa sína til að taka viðtöl við atvinnuleitendur.

16.Umhverfis- og framkvæmdanefnd, fjárhagsáætlun 2015

201408040

Lögð fram áætlun umhverfis- og framkvæmdanefndar um ráðstöfun fjármagns á árinu 2015 til framkvæmda. Áætluninni var vístað til afgreiðslu bæjarráðs á síðasta fundi bæjarstjórnar.

Farið yfir áætlunina og hún staðfest.

17.Einhleypingur 1 - Kauptilboð

201412013

Lagt fram kauptilboð frá HEF í húsnæðið að Einhleypingi 1 í Fellabæ.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra heimild til að ganga til samninga við HEF á grundvelli fyrirliggjandi tilboðsins. Samningurinn verði lagður fyrir bæjarráð til staðfestingar.

18.Leigusamningur við Eignarhaldsfélagið Fasteign.

201411153

Farið yfir mat á tilboðum í endurfjármögnun leigusamnings/lána hjá Fasteignafélaginu Fasteign, em bæjarstjórn hefur samþykkt að nýta uppsagnarákvæði í samningnum miðað við nk. áramót.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Arionbanka í verðtryggt lán á grundvelli tilboðs þeirra frá 25. nóvember.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

19.Fundargerð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 1. des. 2014

201412020

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?