Fara í efni

Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings

11. fundur 26. mars 2025 kl. 13:00 - 13:15 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
  • Sigríður Kristjánsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála

1.Umsókn um framkvæmdaleyfi, Kringilsárrani, bakkavarnir

Málsnúmer 202402089Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá Landsvirkjun um framlengingu um eitt ár, á framkvæmdaleyfi vegna bakkavarna í Kringilsárrana, sem gefið var út til 12 mánaða þann 4. apríl 2024. Aðstæður vorið 2024 voru þess eðlis að ekki var hægt að hefja framkvæmdir við bakkavörnina en stendur til að reyna að nýju vorið 2025 ef aðstæður verða hagfelldar. Náttúruverndarstofnun gerir engar athugasemdir við framlengingu leyfisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Skipulagsfulltrúi samþykkir að framlengja áður útgefið leyfi til og með 23. apríl 2026.

Fundi slitið - kl. 13:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd