Fara í efni

Unalækur á Völlum, íbúðasvæði og frístundabyggð

12.06.2024

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 6. júní 2024 að tillaga um breytingu á deiliskipulagi Unalækjar vegna íbúðasvæðis og frístundabyggðar yrði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

Tilgangur breytingarinnar er að bregðast við aukinni ásókn í lóðir fyrir frístundabyggð í nágrenni Egilsstaða og að bæta aðgengi að lóðum fyrir íbúðarbyggð ásamt því að auka fjölbreytileika í lóðarstærðum.

Skipulagstillagan er aðgengileg í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 1029/2023.

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd 

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna frá 12. júní til og með 2. ágúst 2024. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings,

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?