Fara í efni

Stækkun á hafnarsvæði og nýtt safnasvæði á Seyðisfirði

19.11.2024

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 9. júlí 2024 að auglýsa tillögu vegna breytinga á Aðalskipulagi Seyðifjarðarkaupstaðar 2010-2030 vegna stækkunar á hafnarsvæði og nýju safnasvæði, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi svæðisins í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsáætlunin er unnin af EFLU fyrir hönd sveitarfélagsins en markmið breytinganna er að auka athafnarými hafnarinnar og tryggja öruggt athafnasvæði fyrir hafnsækna starfsemi til framtíðar. Einnig er markmiðið að tryggja öruggt svæði fyrir uppbyggingu á Tækniminjasafni Austurlands.

Skipulagstillagan er aðgengileg í gegnum Skipulagsgátt undir málsnúmerunum 2024/272 og 2024/282.

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd við aðalskipulagsbreytingu

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd við deiliskipulagsbreytingu

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 1. janúar 2025. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigríður Kristjánsdóttir

Getum við bætt efni þessarar síðu?