Fara í efni

Grásteinn-Stakkaberg, óveruleg breyting á deiliskipulagi

10.07.2024

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings samþykkti þann 8. júlí 2024 að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Grásteins, Stakkabergs skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt er fyrir fasteignaeigendum á skipulagssvæðinu. Leigjendur fasteigna teljast einnig til hagsmunaaðila og eru eigendur ábyrgir fyrir því að kynna þeim tillöguna.

Skipulagsáætlunin er unnin af Birni Sveinssyni fyrir hönd Grásteinn sumarhús ehf. Breytingin felst í að settir eru skýrari skilmálar um heimild til byggingu stakstæðra bílgeymsla og sambærilegra bygginga sem samræmast notkun íbúðarhúsalóða. 

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 12. ágúst 2024. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?