Fara í efni

Frístundabyggð við Eiða, aðalskipulagsbreyting

12.06.2024

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 13. mars 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna frístundabyggðar við Eiða í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér að landnotkun á um 53 ha svæði er breytt úr opnu svæði til sérstakra nota yfir í frístundabyggð þar sem gert verður ráð fyrir allt að 50 lóðum fyrir frístundahús til einkanota. Nánari skilmálar og hönnun svæðisins verður sett fram í deiliskipulagi.

Skipulagstillagan er aðgengileg í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 902/2023.

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 2. ágúst 2024. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings,

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?