Fara í efni

Frístundabyggð við Eiða

19.11.2024

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 7. nóvember 2024 að auglýsa tillögu vegna nýs deiliskipulags fyrir frístundabyggð við Eiða skv. 41. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsáætlunin er unnin af LOGG – landfræði & ráðgjöf slf. fyrir hönd Eiða village ehf. og er markmið hennar að skipuleggja 50 lóðir fyrir frístundahús.

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 1. janúar 2025. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigríður Kristjánsdóttir

Getum við bætt efni þessarar síðu?