Fara í efni

Frístundabyggð í landi Eiða, aðalskipulagsbreyting. Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar.

17.09.2024

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 11. september 2024 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna frístundabyggðar í landi Eiða, samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan var auglýst frá 12. júní 2024 til og með 2. ágúst 2024. Athugasemdir sem bárust á auglýsingatíma gáfu ekki tilefni til efnislegra breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.

Þau sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Múlaþings.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigríður Kristjánsdóttir

Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd