Fara í efni

Egilsstaðaflugvöllur, ný akbraut. Óveruleg breyting á aðalskipulagi.

25.02.2025

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 12. febrúar 2025 breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna nýrrar akbrautar við Egilsstaðaflugvöll.

Breytingin felst í því að svæði flugvallarins er stækkað um 3 ha og ný akbraut austan núverandi flugbrautar er afmörkuð á þéttbýlisuppdrætti fyrir Egilsstaði og Fellabæ. Markmið breytingarinnar er að auka getu flugvallarins til að taka á móti millilandaþotum vegna óvæntra aðstæðna á Keflavíkurflugvelli eða öðrum flugvöllum landsins.

Breytingin er ekki talin hafa veruleg áhrif á landnotkun né eru áhrif hennar metin mikil á einstaka aðila eða stórt landsvæði. Breytingin telst því óveruleg og hefur fengið meðferð skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hefur breytingin verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.

Skipulagstillagan er aðgengileg í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 190/2025.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skrifstofu skipulagsfulltrúa, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir eða sent fyrirspurn á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is.

Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd