Fara í efni

Ný aðveitustöð við Hryggstekk í Skriðdal, deiliskipulagsbreyting

16.10.2024

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 10. október 2024 að auglýsa tillögu vegna breytinga á deiliskipulagi Fljótsdalslínu 3 og 4 í Skriðdal skv. 41. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsáætlunin er unnin af Verkís fyrir hönd Landsnets hf. sem áformar að reisa yfirbyggða aðveitustöð sem mun leysa af hólmi núverandi aðveitustöð í áföngum. Markmið breytingarinnar er bætt afhendingaröryggi raforku.

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 29. nóvember 2024. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigríður Kristjánsdóttir

Getum við bætt efni þessarar síðu?