Fara í efni

Deiliskipulagsbreyting, Ný aðveitustöð við Hryggstekk í Skriðdal

10.07.2024

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 4. júlí 2024 að kynna vinnslutillögu vegna breytinga á deiliskipulagi Fljótsdalslínu 3 og 4 í Skriðdal fyrir aðveitustöð við Hryggstekk, skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsáætlunin er unnin af Verkís fyrir hönd Landsnets. Breytingin felst í að afmörkuð er lóð fyrir nýja yfirbyggða aðveitustöð á Hryggstekk við hlið núverandi aðveistustöðvar.

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 12. ágúst 2024. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?