Fara í efni

Langt út / Far out - Sigmar Þór Matthíasson ásamt hljómsveit

Sláturhúsið Egilsstöðum 6. apríl 2025 kl. 20:00

Jazzinn dunar áfram í Sláturhúsinu og nú er það Sigmar Matthíasson sem sækir okkur heim ásamt hljómsveit.

Bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson gaf út sína þriðju sólóplötu síðastliðið haust. Platan, sem nefnist „Uneven Equator“, er einskonar rökrétt en þó sjálfstætt framhald af hans síðustu plötu „Meridian Metaphor“ þar sem söngur og strengjahljóðfæri bætast við og stækka þannig hljóðheiminn - nútíma jazz sem blandast við austræna heimstónlist á frumlegan hátt.

Hljómsveit Sigmars hefur komið fram víða um land undanfarin 4 ár og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2022 sem flytjandi ársins (hópar) í flokki jazz- & blústónlistar. Auk þess hlaut verkefnið nýverið tvær tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2025. Á tónleikunum í Sláturhúsinu mun hljómsveitin flytja efni af báðum áðurnefndum plötum. Að auki er ekki útilokað að glænýtt efni gæti fengið að hljóma.

Nánari upplýsingar:
www.sigmarmatthiasson.bandcamp.com
www.facebook.com/sigmarmatthiasson
www.instagram.com/sigmarmatthiasson 

Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd