Fara í efni

Styrkleikarnir

07.08.2024 Fréttir Egilsstaðir

Í annað sinn munu Styrkleikarnir fara fram á Egilsstöðum helgina 31. ágúst - 1. september. Við hvetjum öll til að hóa saman sitt fólk og mynda hóp fyrir Styrkleikana.

Viðburðurinn er opin öllum sem vilja sýna stuðning í verki og þátttaka er ókeypis. Fjölskyldur, fyrirtæki, félagasamtök eða aðrir skrá sig sem lið og vinna saman að því að hafa liðsfélaga á hreyfingu með boðhlaupskefli allan sólarhringinn. Styrkleikarnir snúast um samstöðu, samveru og samtakamátt liðanna í að styðja, heiðra eða minnast einstaklinga sem hafa fengið krabbamein.

Styrkleikarnir
Getum við bætt efni þessarar síðu?