Fara í efni

Skráning í sumarfrístund hefst á fimmtudaginn

02.04.2025 Fréttir

Opnað verður fyrir umsóknir í sumarfrístund fyrir sumarið 2025, fyrir öll börn fædd 2016-2019 í Múlaþingi. Sótt er um í gegnum Sportabler appið eða í gegnum Sortabler heimasíðuna. Opið verður fyrir umsóknir frá fimmtudeginum 3. apríl klukkan 12:00 til 15. maí klukkan 23:59.

Í sumar mun sumarfrístund hefjast um leið og grunnskólar fara í sumarfrí og stendur fram að skólasetningu.

Börn sem eru að klára 4. bekk býðst að vera í sumarfrístund í júlí.

Börn sem eru að klára 1.-3. bekk geta verið allt sumarið.

Börn sem fædd eru 2019 og eru að ljúka leikskóla geta verið þau tímabil sem eru í boði eftir að sumarfríi leikskóla lýkur. Í stað þess að fara aftur í leikskóla eftir sumarfrí og fram að skólasetningu grunnskóla geta þau þannig verið í sumarfrístund.

Sumarfrístund er frá 09:00-16:00 og greitt er fyrir viku í senn. Ef keyptar eru 3 vikur eða fleiri er veittur afsláttur sem búið er að reikna inn í verðið í vefversluninni. Einnig er veittur systkinaafsláttur í vefversluninni. Hádegismatur og nesti er innifalið í verðinu.

Til að byrja með er boðið upp á takmörkuð pláss og þegar búið er að fylla námskeiðið þá kemur ekki boð um að kaupa námskeið heldur að skrá sig á biðlista. Þegar námskeið er keypt þýðir það að barnið er komið með pláss á sumarnámskeið þær vikur sem keyptar voru. Börn sem fara á biðlista fá upplýsingar um hvort þau fái pláss á námskeiðið þegar umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um dagskrá og þessháttar verða sendar foreldrum áður en hver vika í sumarfrístund hefst.

Skráning í sumarfrístund hefst á fimmtudaginn
Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd