Sameiginleg æfing Slökkvilið Múlaþings verður haldin á Seyðisfirði, föstudaginn 1.nóvember frá klukkan 14:00 til laugardags til klukkan 16:00.
Æfingin er eiturefnanámskeið sem er liður í námi slökkviliðsmanna, kennarinn kemur frá Brunavörnum Árnessýslu.
Einhver umferð slökkvibíla verður um bæinn sökum þessa, en það ætti ekki að valda ónæði fyrir íbúa.