Fara í efni

Óskað eftir tilnefningum til Landstólpans 2025

18.02.2025 Fréttir

Nú er hægt að senda inn tilnenfningar um handhafa Landstólpans 2025. Landstólpinn er samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar og er veittur árlega. Verðlaunin eru hvatningarverðlaun sem veitt eru einstaklingum, fyrirtækjum, hópum eða verkefnum sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist í heild eða innan tiltekins byggðarlags, svo sem innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.

Hafa má í huga hvort viðkomandi einstaklingur, hópur, fyrirtæki eða verkefni hafi:

  • Stuðlað að jákvæðri og sterkri ímynd landsbyggðanna eða tiltekins svæðis
  • Vakið athygli og aukið umfjöllun um ákveðið svæði eða málefni innan landsbyggðanna
  • Styrkt nærumhverfið, ýmist með aukinni samstöðu íbúa, atvinnutækifærum, aukinni afþreyingu, menningu, þjónustu, verðmætasköpun eða tækifærum af öðru tagi
  • Aukið virkni íbúa og fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
  • Stuðlað að jákvæðum áhrifum efnahags-, samfélags- og/eða umhverfislegra þátta

Ekki er nauðsynlegt að öllum atriðum sé fylgt eftir en gott er að hafa þau til hliðsjónar. Tilnefningunni verður að fylgja rökstuðningur og mun dómnefnd velja út þeim tillögum sem berast.

Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af íslenskum listamanni og verðlaunafé að upphæð 1.000.000. króna.

Óskað er eftir því að tillögur verði sendar á netfangið landstolpinn@byggdastofnun.is.

Nánari upplýsingar veita Helga Harðardóttir eða Andri Þór Árnason í síma 455-5400.

Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út föstudaginn 28. febrúar 2025.

Óskað eftir tilnefningum til Landstólpans 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd