Fara í efni

Opnunartími skrifstofa um jól og áramót

20.12.2024 Fréttir

Skrifstofur Múlaþings verða lokaðar á aðfangadag, þriðjudaginn 24. desember og til og með 26. desember. Skrifstofurnar verða opnar eftir jólin föstudaginn 27. desember og mánudaginn 30. desember, á hefðbundnum opnunartíma þeirra. Þær verða hins vegar lokaðar á Gamlársdag og Nýársdag. Rétt er að hafa í huga að þar sem sumt starfsfólk nýtir dagana milli jóla og nýárs til töku á óáteknu sumarleyfi má reikna með að þjónusta skrifstofanna verði skert á einhverjum sviðum. Símanúmer sveitarfélagsins er 4700 700 og netfangið er mulathing@mulathing.is.

Opnunartími skrifstofa um jól og áramót
Getum við bætt efni þessarar síðu?