Fara í efni

Menningarstyrkir Múlaþings - Múlaþing Cultural Grants

13.08.2024 Fréttir

Byggðarráð Múlaþings auglýsir til umsóknar seinni úthlutun á styrkjum til menningarstarfs á árinu 2024 með umsóknarfresti til og með 1. september 2024.
Múlaþing veitir menningarstyrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til almennrar liststarfsemi, viðburða eða verkefna. Umsækjendur skulu tengjast Múlaþingi með búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Múlaþingi eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Múlaþings.

Sótt er um styrk með rafrænum hætti á Mínum síðum Múlaþings. Stefnt er að því að afgreiðsla umsókna liggi fyrir í lok september.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun menningarstyrkja Múlaþings á heimasíðu sveitarfélagsins.

Þetta er seinni úthlutun fyrir árið 2024. Til úthlutunar verða 1.978.000 kr.
Styrkir eru að upphæð 50.000 - 300.000 kr.

Upplýsingar og ráðgjöf má fá í gegnum tölvupóst menningarstyrkir@mulathing.is.

-----

Múlaþing Executive Board calls for applications for cultural project grants for 2024.
The application deadline is September 1st 2024.
The Múlaþing cultural grant is intended for individuals, groups, associations, companies and institutions for artistic activities, events, or projects. Applicants must be connected to Múlaþing in some way, either through residence, that the event takes place at Múlaþing or includes a promotion for Múlaþing‘s cultural activities.

Grant applications will be processed in September 2024.

To apply please use the municipality Resident Portal (Mínar síður), and log in with Electronic ID or Íslykill.

Applicants are encouraged to familiarise themselves with the rules of Múlaþing‘s cultural grants on the municipality‘s website.

This is the second allocation for 2024, 1.978.000 kr. will be allocated in this second round.
Grants are in the amount of 50.000 - 300.000 kr.

For further information or advice please contact menningarstyrkir@mulathing.is. 

Menningarstyrkir Múlaþings - Múlaþing Cultural Grants
Getum við bætt efni þessarar síðu?