Byggðarráð Múlaþings auglýsir til umsóknar styrki til menningarstarfs á árinu 2025 með umsóknarfrest til og með 20. desember 2024.
Múlaþing veitir menningarstyrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til almennrar liststarfsemi, viðburða eða verkefna. Umsækjendur skulu tengjast Múlaþingi með búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Múlaþingi eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Múlaþings.
Sótt er um styrk með rafrænum hætti Mínum síðum sveitarfélagsins og stefnt er að því að afgreiðsla styrkumsókna liggi fyrir í lok janúar 2025.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun menningarstyrkja og aðrar upplýsingar um menningarstyrki áður en umsókn er send.
Athugið að breyting hefur orðið á úthlutunarferli menningarstyrkja og verða skyndistyrkir ekki afgreiddir. Úthlutað verður tvisvar á árinu 2025 og er þetta fyrri úthlutun. Til úthlutunar verða 8.188.800 kr. í fyrri úthlutun og 2.047.200 kr. í seinni úthlutun sem verður auglýst í ágúst 2025. Styrkir í fyrri úthlutun eru að upphæð 50.000 - 500.000 kr.
Upplýsingar og ráðgjöf veitir Elsa Guðný Björgvinsdóttir verkefnastjóri menningarmála, elsa.bjorgvinsdottir@mulathing.is eða í síma 4700 700.
Verkefnastjóri menningarmála verður með viðveru á Borgarfirði, Djúpavogi og Seyðisfirði í aðdraganda úthlutunar sem hér segir (með fyrirvara um breytingar):
Seyðisfjörður: 2. desember
Djúpivogur: 3. desember
Borgarfjörður: 4. desember
Hægt er að panta tíma með því að senda línu á elsa.bjorgvinsdottir@mulathing.is eða bara líta við til að ræða hugmyndir og umsóknir.
EN / Do you have a great idea?
Múlaþing Executive Board calls for applications for cultural project grants for 2025. The application deadline is December 20th 2024.
Múlaþing cultural grant is intended for individuals, groups, associations, companies and institutions for artistic activities, events, or projects. Applicants must be connected to Múlaþing in some way, either through residence, that the event takes place at Múlaþing or includes a promotion for Múlaþing‘s cultural activities.
To apply please use the municipality Resident Portal (Mínar síður), and log in with Electronic ID. Grant applications will be processed in January 2025.
Applicants are encouraged to familiarize themselves with the rules of Múlaþing‘s cultural grants and other information on cultural grants before submitting the application.
Please note that there has been a change in the allocation process for cultural grants, immediate grants outside of the grant deadline will not be processed. This is the first allocation for 2025, 8.188.800 kr. will be allocated in the first round. The second allocation will be for 2.047.200 kr. and will be advertised in August 2025.
Grants in the first allocation are in the amount of 50.000 - 500.000 kr.
For further information or advice please contact Elsa Guðný Björgvinsdóttir cultural project manager at elsa.bjorgvinsdottir@mulathing.is or 4 700 700.
Cultural project manager will be present in Borgarfjörður, Djúpivogur and Seyðisfjörður at the following dates (subject to change)
Seyðisfjörður: 2. desember
Djúpivogur: 3. desember
Borgarfjörður: 4. desember
You are welcome to stop by to discuss projects and applications. You can book a time in advance at elsa.bjorgvinsdottir@mulathing.is