Fara í efni

Mengun í neysluvatni á Borgarfirði

26.08.2024 Borgarfjörður

Við reglubundið eftirlit með neysluvatni kom í ljós að neysluvatnið á Borgarfirði eystra er örverumengað. Um er að ræða saurgerla og E. coli, sem gefur til kynna að vatnið er mengað af saur frá mönnum eða blóðheitum dýrum. Nauðsynlegt er að sjóða vatn til neyslu. Óhætt er að nota vatnið til annarra þarfa svo sem til baða, þvotta og matargerðar svo sem til skolunar á matvælum, sem munu síðar vera elduð.

Hér má finna leiðbeiningar um suðu á neysluvatni

Uppfærslur um gang mála verða settar inn á miðla HEF, íbúar Borgarfjarðar eru hvattir til að fylgjast með þar.

Mengun í neysluvatni á Borgarfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?