Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 30. nóvember 2024. Kjörstaðir verða sem hér segir í Múlaþingi:
- Borgarfjörður eystri: Hreppstofan Borgarfirði. Frá klukkan 09:00 til klukkan 17:00
- Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00
- Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilstöðum. Frá klukkan 09:00 til klukkan 22:00
- Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði. Frá klukkan 09:00 til klukkan 20:00
Hægt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði eystra og á Djúpavogi, á opnunartímum skrifstofanna frá og með 18. nóvember til og með 29. nóvember. Þá er hægt að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum Sýslumannsins á Austurlandi á Egilsstöðum og á Seyðisfirði á opnunartíma skrifstofanna.
Kjördeildir við Alþingiskosningarnar verða fimm talsins, tvær á Egilsstöðum vegna Fljótsdalshéraðs en ein í hverjum hinna þriggja kjarna sveitarfélagsins. Kjördeildirnar á Fljótsdalshéraði skiptast þannig: Í kjördeild nr. 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum R. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum S – Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og íbúar í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.
Kjósendur eru minntir á að hafa persónuskilríki sín tiltæk á kjörstað.
Á kjördag, meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt á kjörstað í Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Símanúmer yfirkjörstjórnar á kjördag eru 895-9972 (Björn), 665-8858 (Hlynur), 863-3636 (Arna), tölvupóstfang til notkunar á kjördag: kjorstjorn@me.is.