Starfsmenn þjónustumiðstöðva Múlaþings og verktakar hafa unnið hörðum höndum að snjómokstri undanfarna daga. Almennt hefur gengið vel en eftirvagnar á götum og í almenningsstæðum í íbúðarhverfum torvelda snjómokstur. Vakin er athygli á því að á Fljótsdalshéraði og á Seyðisfirði er óheimilt að leggja eftirvögnum á götum og í almenningsstæðum í íbúðarhverfum þar á meðal á snúningssvæði í botnlangagötum. Þetta á jafnframt við um bifreiðar, vinnuvélar eða önnur ökutæki sem eru óskráð eða óökufær. Almenningsbílastæði í Múlaþingi eru ekki ætluð til geymslu ökutækja eða ökutækjahluta til lengri tíma.
Eigendur slíkra eftirvagna eða ökutækja eru vinsamlegast beðnir um að færa þau þangað sem heimilt er að leggja, til dæmis í þar til gerð stæði innan lóða sinna.
Frekari upplýsingar um umferð á Fljótsdalshéraði má nálgast hér og á Seyðisfirði hér.
Upplýsingar um vetrarþjónustu í Múlaþingi má nálgast hér.