Sveitarfélagið Múlaþing og HEF veitur óska eftir tilboðum í verkið: Jörfi – Gatnagerð og veitulagnir.
Verkið felst í jarðvegsskiptum í götum og gangstígum. Leggja skal fráveitu-, regnvatns-, vatnsveitu- og raflagnir og tengja allar lagnir við núverandi bæjarkerfi á Borgarfirði Eystri ásamt uppsetningu ljóstastaura.
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt úr götum |
1420 m3 |
Burðarlag í götur |
1090 m3 |
Skurðgröftur |
255 m |
Söndun í lagnaskurð |
255 m |
Vatnslagnir |
175 m |
Fráveitulagnir |
435 m |
Ljósastaurar |
6 stk |
|
|
Útboðsgögn verða afhent rafrænt. Óskir um afhendingu útboðsgagna berist til Söru Kolodziejczyk, sko@efla.is.
Tilboðum skal skilað eigi síðar en föstudaginn 8. desember fyrir klukkan 14:00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.