Jólamarkaður Jólakattarins verður haldinn í Landsnetshúsinu og Dekkjahöllinni laugardaginn 14. desember klukkan 11:00 til 16:00. Hið ómóstæðilega ketilkaffi að hætti skógarmanna verður á sínum stað og hægt að versla hátíðarmat sem framleiddur er á Austurlandi.
Austfirskt handverk ásamt fallegri gjafavöru verður á markaðnum sem og jólatré og skógarafurðir.