Eigendur óskráðra hunda og katta eru hvattir til að skrá dýr sín hjá sveitarfélaginu. Allir kettir í þéttbýli og hundar eiga að vera skráðir hjá sveitarfélaginu og varðar vanræksla sektum. Örmerkjaskráning jafngildir ekki skráningu hjá sveitarfélaginu heldur er sótt um í gegnum mínar síður sveitarfélagsins.
Þá er handsömunargjald dýra sem ekki eru skráð hjá sveitarfélaginu umtalsvert hærra en skráðra dýra samkvæmt gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Múlaþingi sem má nálgast hér.
Þjónustan er gjaldfrjáls þeim sem hafa skráð dýr sín hjá sveitarfélaginu og greiða af þeim leyfisgjöld. Eigendur hunda og katta geta sótt um 50% afslátt af leyfisgjöldum sveitarfélagsins sýni þeir fram á að hundar hafi sótt hlýðninámskeið og kettir hafi farið í ófrjósemisaðgerð. Sótt er um í gegnum mínar síður sveitarfélagsins.
Henti tímasetningar ekki þarf að panta tíma hjá dýralækni, helst í nóvember og senda staðfestingu á ormahreinsun á umhverfisfulltrui@mulathing.is.
Árleg ormahreinsun hunda og katta í Múlaþingi verður sem hér segir:
Egilsstaðir
Hundar: 6. nóvember klukkan 16:30 – 18:30
Kettir: 7. nóvember klukkan 16:30 – 18:30
Hvar: Í Samfélagssmiðjunni (Blómabæjarhúsinu) Miðvangi 31
Djúpivogur (ATH. breytt tímasetning)
Hundar og kettir 24. október kl. 12:30 - 14:00
Hvar: Í þjónustumiðstöðinni, Víkurlandi 6
Seyðisfjörður
Hundar: 13. nóvember klukkan 16:00 – 17:00
Kettir: 13. nóvember klukkan 17:00 – 18:00
Hvar: Í þjónustumiðstöðinni, Ránargata 2
Borgarfjörður eystri
Hundar og kettir: 14. nóvember 16:00 – 17:00
Hvar: Með óbreyttu sniði.