Það var mikið líf á skrifstofum Múlaþings á Egilsstöðum í dag þegar hana heimsóttu nemendur úr 4. bekk Egilsstaðaskóla.
Nemendurnir hafa verið að læra um lýðræði undanfarið og þáttur í þeirri kennslu var að safna saman hugmyndum um það sem betur mætti fara í sveitarfélaginu. Þegar hugmyndinar voru allar komnar á blað hjálpuðu kennarar til við að flokka frá þær sem sveitarstjóri hafði lítið eða ekkert með að gera og að lokum kusu nemendur þær átta hugmyndir sem þóttu hvað mikilvægastar. Hugmyndinar voru síðan settar í bréf sem nemendur færðu Dagmar Ýr sveitarstjóra í dag.
Í kjölfarið sköpuðust skemmtilegar umræður, um lýðræði, bréfið sjálft sem og störf sveitarstjóra almennt. Nemendu vildu gjarnan vita hvort starf sveitarstjóra væri skemmtilegt og hvort sá sem sinnti því starfi gæti tekið sér frí.
Hér að neðan er bréfið sem nemendur færðu sveitarstjóra:
Kæra Dagmar, sveitarstjóri Múlaþings
Við í 4. bekk í Egilsstaðaskóla höfum nýlega rætt um lýðræðislegar kosningar og hvernig við getum haft áhrif á nærumhverfi okkar. Í lífsleiknitíma í skólanum kusum við átta hugmyndir sem við teljum að myndu bæta umhverfið okkar mikið. Við viljum því koma þessum hugmyndum á framfæri við ykkur og vonum að þær fái athygli.
Hér eru hugmyndirnar sem við völdum:
- Moka gangstéttir betur og oftar.
Það er ekki gott að þurfa að labba á götunni þegar það er mikill snjór eða ruðningar. Svo eru sumir sem hjóla, eru með barnavagn eða í hjólastól sem komast ekki leiðar sinnar þegar það er mokað illa. - Fleiri vatnskranar við íþrótta- eða leikvelli.
- Hreinsa tjörnina í Tjarnargarðinum.
- Betri körfuboltavöll í Fellabæ.
- Fleiri leikvelli og leiktæki fyrir okkar aldurshóp.
- Vísindi sem námsgrein í Egilsstaðaskóla.
- Stærra skautasvell og fleiri hjálpargrindur við skautasvellið.
- Afmarkaður staður á Egilsstöðum þar sem ríkir friður, ró og hæglæti.
Það væri hægt að setja upp skilti og hvetja fólk til hæglætis og rólegheita, að það væri bannað að vera með læti á þessu svæði.
Við teljum að þessar breytingar myndu hafa jákvæð áhrif á samfélagið okkar og bæta lífsgæði bæði barna og fullorðinna. Við vonum að sveitarfélagið geti skoðað þessar hugmyndir og kannski tekið fyrstu skrefin í að framkvæma þær.
Við erum spennt fyrir því að sjá hvernig bæjarfélagið okkar getur orðið enn betra fyrir alla, og við erum tilbúin að styðja við verkefni sem tengjast þessum hugmyndum ef það þarf.
Við þökkum ykkur fyrir að taka okkur alvarlega og hlökkum til að heyra frá ykkur.
Með kærri kveðju,
Nemendur í 4. bekk, Egilsstaðaskóla