Fara í efni

Fjárhagsáætlun Múlaþings 2025 - 2028

13.12.2024 Fréttir

Fjárhagsáætlun Múlaþings fyrir árið 2025 ásamt 3ja ára áætlun fyrir 2026-2028 var samþykkt við seinni umræðu í sveitarstjórn þann 11. desember 2024.

Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:

  • Rekstrarafkoma A og B hluta samkvæmt fyrirliggjandi tillögu til fyrri umræðu er jákvæð á árinu 2025 um 704 millj. kr. Afkoma af rekstri A hluta er jákvæð um 70 millj. kr.
  • Skatttekjur hækka um 478 millj. kr. á milli ára ef miðað er við áætlun fyrir árið 2024 og nema 8.263 millj. kr. sem er 6,2% hækkun á milli ára.
  • Útsvarstekjur nema 4.273 millj. kr. og hækka 3,3% miðað við samþykkta áætlun fyrir árið 2024.
  • Áætlað er að fasteignaskattur nemi um 954 millj. kr. sem er 7,5% hækkun frá 2024.
  • Framlög Jöfnunarsjóðs nema 2.945 millj. kr. sem er 5,8% hækkun miðað við samþykkta áætlun 2024.
  • Í útkomuspá launa fyrir árið 2024 er áætluð niðurstaða A hluta um 5.239 millj. kr. en verða um 5.629 millj. kr. á árinu 2025 sem gerir um 7,7 % hækkun á milli ára.
  • Framlegð (EBITDA) í A hluta er áætluð 841 millj. kr. eða 8,9% og í samstæðu A og B hluta er framlegð áætluð 1.767 kr. eða 16,4%.
  • Fjárfestingar A hluta nemi 550 millj. kr. nettó samkvæmt forsendum áætlunar.
  • Fjárfestingar B hluta nemi um 1.107 millj. kr nettó samkvæmt forsendum áætlunar.

Nánar má sjá fyrirliggjandi áætlun hér á heimasíðu Múlaþings.

Nánari upplýsingar veita Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings, og Guðlaugur Sæbjörnsson, fjármálastjóri Múlaþings.

 

 

 

 

Fjárhagsáætlun Múlaþings 2025 - 2028
Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd