Fara í efni

Fjárhagsáætlun 2025 – 2028 - fyrri umræða

13.11.2024 Fréttir

Fjárhagsáætlun Múlaþings fyrir árið 2025 ásamt 3ja ára áætlun fyrir 2026-2028 var lögð fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn Múlaþings á fundi þann 13. nóvember 2024.

Helstu niðurstöður:

  • Rekstrarafkoma A og B hluta samkvæmt fyrirliggjandi tillögu til fyrri umræðu er jákvæð á árinu 2025 um 635 millj. kr. Afkoma af rekstri A hluta er jákvæð um 0,5 millj. kr.
  • Skatttekjur hækka um 409 millj. kr. á milli ára ef miðað er við áætlun fyrir árið 2024 og nema 8.194 millj. kr. sem er 5,3% hækkun á milli ára.
  • Útsvarstekjur nema 4.307 millj. kr. og hækka 4,1% miðað við samþykkta áætlun fyrir árið 2024.
  • Áætlað er að fasteignaskattur nemi um 969 millj. kr. sem er 8,3% hækkun frá 2024.
  • Framlög Jöfnunarsjóðs nema 2.827 millj. kr. sem er 5,8% hækkun miðað við samþykkta áætlun 2024.
  • Í útkomuspá launa fyrir árið 2024 er áætluð niðurstaða A hluta um 5.239 millj. kr. en verða um 5.629 millj. kr. á árinu 2025 sem gerir um 7,7 % hækkun á milli ára.
  • Framlegð (EBITDA) í A hluta er áætluð 772 millj. kr. eða 8,2% og í samstæðu A og B hluta er framlegð áætluð 1.767 kr. eða 15,9%.
  • Fjárfestingar A hluta nemi 550 millj. kr. nettó samkvæmt forsendum áætlunar.
  • Fjárfestingar B hluta nemi um 1.107 millj. kr nettó samkvæmt forsendum áætlunar.

Sjá nánar fyrirliggjandi áætlun.

Nánari upplýsingar veita Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings, og Guðlaugur Sæbjörnsson, fjármálastjóri Múlaþings.

Fjárhagsáætlun 2025 – 2028 - fyrri umræða
Getum við bætt efni þessarar síðu?