Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi, Borg, 721,

Málsnúmer 202405154

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 120. fundur - 24.06.2024

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsókn um byggingarheimild vegna byggingar skemmu á jörðinni Borg (L157228) í Njarðvík. Áformin eru í samræmi við Aðalskipulag Borgarfjarðarhrepps 2004-2016 en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með hliðsjón af því ekki er líklegt að áformin hafi veruleg grenndaráhrif samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að falla frá grenndarkynningu og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Múlaþings - 30. fundur - 15.11.2024

Fyrir liggur umsókn um byggingaráform og byggingarheimild fyrir skemmu.
Byggingarheimild var gefin út dags. 04.09.2024.
Getum við bætt efni þessarar síðu?