Fara í efni

Auglýsing um umferð á Seyðisfirði

28.05.2024 Tilkynningar Seyðisfjörður

Samkvæmt heimild í 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, hefur byggðaráð Múlaþings samþykkt að setja eftirfarandi reglur um umferð á Seyðisfirði. Auglýsingin hefur fengið samþykki frá lögreglustjóranum á Austurlandi og veghaldara sem er Múlaþing.

1. Takmarkanir á akstri

Einstefna er inn Ferjuleiru frá gatnamótum Hafnargötu og Ferjuleiru, að gatnamótum Lónsleiru og Ferjuleiru á Seyðisfirði.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar og varir frá 1. júní til 30. september ár hvert.

Samþykkt í byggðaráði Múlaþings 21. maí 2024.

Auglýsingin birt í B deild Stjórnartíðinda

Mynd: Ingvi Örn Þorsteinsson
Mynd: Ingvi Örn Þorsteinsson
Getum við bætt efni þessarar síðu?