Fara í efni

Slökkvistöð Djúpavogs, breytingar -1.áfangi

08.10.2024 Fréttir Djúpivogur

Múlaþing óskar eftir tilboðum í framkvæmdina, Slökkvistöð Djúpavogs, breytingar – 1. áfangi.
Verkið felst í jarðvinnu, múrbroti, steypusögun, uppsteypu, lagnavinnu ásamt frágangi innanhúss vegna breytinga á Slökkvistöð Djúpavogs.

Helstu magntölur eru:

Múrbrot 190 m2

Steypusögun 150 m2

Brottfluttur uppgröftur 114 m3

Fráveitulagnir 45 m

Neysluvatnslagnir 100 m

Steinsteypa 35 m3

Léttir timbur útveggir 70 m2

Málun 780 m2

Gólfefni 124 m2

Verktaki getur hafið framkvæmdir að lokinni undirritun samnings, verklok eru 15. júní 2025. Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum
8. október 2024 í gegnum útboðsvef COWI: https://mannvit.ajoursystem.net/.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir klukkan 14:00, föstudaginn 25. október 2024. Ekki verður eiginlegur opnunarfundur en bjóðendum verða tilkynntar niðurstöður eftir lok tilboðsfrests.

Slökkvistöð Djúpavogs, breytingar -1.áfangi
Getum við bætt efni þessarar síðu?