Fara í efni

Barnasýningin um Kjarval: drenginn, manninn og málarann

15.10.2024 Fréttir

Uppsetning á leiksýningu Borgarleikhússins um listmálaranna Kjarval er núna í fullum gangi í Sláturhúsinu en í komandi viku býður Sláturhúsið, í samstarfi við Borgarleikhúsið, List fyrir alla, Minjasafnið og BRAS, nemendum úr Grunnskólum á Austurlandi ( frá Vopnafirði til Djúpavogs) á leiksýninguna Kjarval.

Listmálarinn Jóhannes Sveinsson Kjarval var ekki bara einn merkasti málari sem Íslendingar hafa átt, heldur má segja að hann hafi átt stóran þátt í að kenna þjóð sinni að meta stórbrotna náttúru landsins, náttúrunnar vegna. En hver var þessi sérkennilegi maður – og hvaðan kom hann? Í leikandi léttri fjölskyldusýningu sem byggir að hluta til á verðlaunabók Margrétar Tryggvadóttur um listamanninn, er leitast við að draga upp mynd af Kjarval; drengnum, manninum og málaranum.

Listin sjálf er sömuleiðis í brennidepli; hvernig hún er allt í kringum okkur og hefur áhrif á lífið alla daga, við horfum á listina og ef við erum heppin þá horfir hún til baka. Jóhannes Kjarval batt bagga sína ekki sömu hnútum og samferðamenn en kenndi okkur að líta umhverfið nýjum augum og sjá listina í hinu stórbrotna jafnt sem hinu hversdagslega – í hrikalegu hrauni en líka í mygluðum flatkökum.

Sýningin er meðal annars styrkt af: List fyrir alla, Barnamenningarsjóði, Landsvirkjun, Alcoa og Múlaþingi. Fjöldi smærri fyrirtækja styður vel við bakið á okkur með kostun á rútuferðum fyrir skólabörnin. Þau fyrirtæki eru: Tanni Travel, MVA, Hafaldan, SÚN, Loðnuvinnslan og Skógarafurðir.

í kjölfarið á leiksýningunni fá nemendurnir leiðsögn um sýninguna "Kjarval á Austurlandi".

Barnasýningin um Kjarval: drenginn, manninn og málarann
Getum við bætt efni þessarar síðu?