Fara í efni

Tengivinnu á Seyðisfirði lokið

21.06.2024 Tilkynningar Seyðisfjörður

Tengivinnu við stofnlögn vatnsveitu á Seyðisfirði lauk um klukkan 5 í morgun. Allir notendur ættu að vera komnir með vatn en ráðlagt er að skrúfa varlega frá krönum þar sem loft gæti verið á kerfinu.
Vinnan stóð í um 7 klst. og að henni komu 13 starfsmenn HEF og verktaka.

 HEF veitur þakka Seyðfirðingum auðsýnt umburðarlyndi vegna framkvæmdarinnar.

Tengivinnu á Seyðisfirði lokið
Getum við bætt efni þessarar síðu?