Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdanefnd

100. fundur 24. október 2018 kl. 17:00 - 20:30 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Guðfinna Harpa Árnadóttir formaður
  • Aðalsteinn Ásmundarson aðalmaður
  • Kristjana Sigurðardóttir aðalmaður
  • Guðrún Ásta Friðbertsdóttir varamaður
  • Guðný Margrét Hjaltadóttir varamaður
  • Kjartan Róbertsson starfsmaður
  • Freyr Ævarsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Freyr Ævarsson verkefnastjóri umhverfismála

1.Deiliskipulag Stuðlagil - Grund

201810120

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Stuðlagil-Grund.

Frestað.

2.Aðalfundur SSA 2018

201806160

Fyrir fundi liggja ályktanir aðalfundar SSA 2018.

Lagt fram til kynningar.

3.Upplýsingar um framkvæmdir, hitaveitulögn frá Barra að Vök.

201810119

Upplýsingar um lagnaleið frá Barra að Vök.

Lagt fram til kynningar.

4.Aðalskipulag Fljótsdalshrepps 2014 - 2030

201810016

Breyting á Aðalskipulagi Fljótsdalshrepps 2014 - 2030, tillaga til kynningar á vinnslustigi.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur ekki athugasemdir við tillöguna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Mannvirki á miðhálendinu, skýrsla Skipulagsstofnunnar

201810071

Skýrsla Skipulagsstofnunar og þjóðskrár lögð fram til kynningar.

6.Umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2018

201809014

Verkefnastjóri umhverfismála fór yfir stöðu mála varðandi umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
Umsókn í vinnslu.

7.Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagning rafstengs frá Selás 8 að Fagradalsbraut 13

201809122

Erindi frá Rarik vegna lagningar rafstrengs frá Selási 8 til Fagradalsbrautar 13 þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi.

Lagt fram til kynningar.

8.Breyting á deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Skógræktarfélags Austurlands í Eyjólfsstaðskógi á Völlum

201802140

Fyrir fundi liggur breyting á deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Skógræktarfélags Austurlands í Eyjólfsstaðaskógi á Völlum.

Mál var áður á dagskrá þann 28. febrúar sl.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingartillögu á deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Skógræktarfélags Austurlands og leggur til að hún verði auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem nær til sama svæðis.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Staða aðalskipulags Fljótsdalshéraðs 2008-2028 Eyjólfsstaðir

201810123

Fyrir umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur fyrir að fara yfir stöðu skipulags í tengslum við deilskipulagsáform á svæðinu.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að breyting verði gerð á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 þar sem lóðir 1-5 í frístundabyggð F53 Eyjólfsstaðaskógur, Skógræktarfélag Austurlands verði skilgreindar í blandaðri landnotkun, annars vegar frístundabyggð og hins vegar þjónustu, sem heimili sölu gistingar á umræddum lóðum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Starfsáætlun umhverfis- og framkvæmdanefndar 2019

201808175

Vinnu haldið áfram við starfsáætlun.

Í vinnslu.

11.Breyting á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag fyrir hluta Grundar á Efra Jökuldal

201806085

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur erindi frá LOGG landfræði og ráðgjöf slf. fyrir hönd Jökulsdals slf. þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi. Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að farið verði í breytingar á aðalskipulagi í samræmi við erindi LOGG landfræði og ráðgjöf slf. og jafnframt verði samþykkt að heimila landeigendum gerð deiliskipulags.

Málið var áður á dagskrá þann 27.6.sl.

Frestað.

12.Miðbær Egilsstaða deiliskipulag 2016

201401135

Farið yfir stöðu vinnu við deiliskipulag miðbæjar Egilsstaða.

Í vinnslu.

13.Breyting á deiliskipulagi Flugvallar

201802076

Lagðar eru fram tillögur að svörum og áframhaldandi málsmeðferð deiliskipulagstillögu.

Lagt fram til kynningar.

14.Eyvindará - Ósk um not á landspildu í landi Fljótsdalshéraðs

201810116

Erindi frá eigendum Hótel Eyvindarár ehf. þar sem óskað er eftir því að leigja eða kaupa land í eigu sveitafélagsins undir fráveitumannvirki.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að gengið verði til samninga við eigendur Hótel Eyvindarár ehf. um land til leigu undir fráveitumannvirki.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

15.Spennistöð, Dalseli 2

201810041

Erindi frá byggingaraðila og kaupendum vegna spennistöðvar við Dalsel.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að láta gera breytingu á deiliskipulagi Selbrekku að höfðu samráði við Vegagerðina og Rarik þar sem tekið er tillit til framkominna athugasemda eigenda Dalsels 2.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

16.Umsókn um byggingarlóð / Klettasel 7

201809002

Erindi dagsett 03.09.2018, þar sem Brynjar Már Eðvaldssson sækir um lóðina Klettasel 7, Egilsstöðum.

Málið var áður á dagskrá þann 12.9. sl.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að endalóð við Klettasel verði úthlutað samkvæmt fyrirliggjandi umsókn. Samhliða verði núverandi úthlutun afturkölluð og gerð breyting á deiliskipulagi Selbrekku þar sem tekið er tillit til óska umsækjenda.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

17.Umsókn um lóð, Ártún 10 - 16

201810124

Umsókn frá Nova invest um lóð, Ártún 10 - 16

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Ártún 10-16 verði úthlutað skv. fyrirliggjandi umsókn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 20:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?