Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdanefnd

95. fundur 15. ágúst 2018 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Guðfinna Harpa Árnadóttir formaður
  • Benedikt Hlíðar Stefánsson varaformaður
  • Aðalsteinn Ásmundarson aðalmaður
  • Kristjana Sigurðardóttir aðalmaður
  • Hrefna Hlín Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
  • Anna Alexandersdóttir bæjarfulltrúi
  • Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags- og byggingarfulltrúi
  • Guðrún Ásta Friðbertsdóttir varamaður
  • Guðný Margrét Hjaltadóttir varamaður
Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson Skipulags- og byggingarfulltrúi
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að bæta við tveimur erindum, það eru:
umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhús að Ártúni 11 - 17 og umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingu á Bláskógum 11. og verða þau erindi númer 19 og 20.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1.Auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis.

201807038

Lagt fram til kynningar.

2.Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingu á húsi. Bláskógar 11

201808083

Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingu á Bláskógum 11 þar sem óskað er eftir að gera breytingar á þaki.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að erindið fái málsmeðferð í samræmi við 44. gr. laga nr. 122/2010

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhúsi, Ártúni 11- 17

201808082

Fyrirpurn frá Hrafnkeli Elíssyni vegna byggingaráforma að Ártúni 11- 17.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við áform og leggur til við bæjarstjórn að erindi fá afgreiðslu í samræmi við 3.mgr. 43.gr. laga nr.122/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Vetrarþjónusta í dreifbýli.

201807009

Umhverfis- og framkvæmdanefnd fól skipulags- og byggingarfulltrúa í samstarfi við formann nefndarinnar og Vegagerðina að undirbúa verklagsreglur og samninga um vetrarþjónustu í dreifbýli sem tekið skyldi til umfjöllunar á næsta fundi nefndarinnar.

Farið yfir stöðu vinnu við verklagsreglur.

Í vinnslu.

5.Átak í friðlýsingum, svæði í verndarflokki rammaáætlunar.

201808005

Erindi frá Umhverfisstofnun þar sem farið er yfir áform um átak í friðlýsingu á svæðum í verndarflokki rammaáætlunar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd vísar erindi til náttúruverndarnefndar.

Lagt fram til kynningar.

Guðný Margrét Hjaltadóttir og Guðrún Ásta Friðbertsdóttir sátu fundinn frá og með þessum lið.

6.Rafbílavæðing

201702095

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirliggjandi samning með fyrirvara um álit lögfræðings.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi frestað til kl. 17.00 þann 16. ágúst. nk.

Af fundi viku þær Guðfinna Harpa Árnadóttir og Anna Alexandersdóttir.

7.Samningur um grenjaleit og refaveiðar

201808044

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirliggjandi samning.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Fundur fjallskilastjóra 2018

201807040

Umhverfis- og framkvæmdanefnd tekur undir eftirfarandi bókun frá fundi fjallskilastjóra: "Þess er krafist að Matvælastofnun sjái til þess að sauðfjárveikivarnargirðingar sem stofnunin ber ábyrgð á séu fjárheldar."

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að hafa til hliðsjónar fundargerð fjallskilastjóra við gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlunar 2019. Nefndin felur verkefnisstjóra umhverfismála að afla frekari upplýsinga.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Lausaganga búfjár, fjallskil og fl.

201808016

Lagt fram til kynningar.

10.Varmadælulausn í Brúarásskóla.

201805116

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur tillaga að orkusparandi aðgerðum vegna húshitunar í Brúarásskóla.

Á fundinn mættu Kjartan Róbertsson, yfirmaður eignasjóðs, og Björgvin Steinar Friðriksson hjá Verkráð og fóru yfir hagkvæmni á uppsetningu á varmadælum við Brúarásskóla.

Mál í vinnslu.

Guðný Margrét Hjaltadóttir og Guðrún Ásta Friðbertsdóttir sátu fundinn undir þessum lið.

11.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs - 163

1808003F

Fundargerð 163. fundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.
  • 11.1 201808026 Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging lóð 2. Ekkjufell
  • 11.2 201808024 Umsókn um byggingarleyfi, iðnaðarhúsnæði Miðási 22
  • 11.3 201807030 Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingu á innra skipulagi.
  • 11.4 201806146 Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytng á viðbygging við Furuvelli 5

12.Skriðdals- og Breiðdalsvegur - Framkvæmdaleyfi.

201802037

Lagt fram til kynningar.

13.Beiðni um breytingar á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna Kröflulínu 3.

201801100

Lagt fram til kynningar.

14.Umsókn um byggingarlóð / hesthús

201808009

Umhverfis- og framkvæmdanefnd frestar afgreiðslu erindis.

Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að afla frekari upplýsinga.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

15.Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging lóð 2 Ekkjufell

201808026

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

16.Umsókn um stofnun lögbýlis, Árteigur

201808027

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að veitt verði jákvæð umsögn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

17.Beiðni um leiðréttingu á lóðarstærð og landskipti.

201808025

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur jafnframt áherslu á að tryggð verði aðkoma að Kirkjubæ með þinglýstri kvöð á lóð.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

18.Ósk um breytingu á deiliskipulagi Hamragerði 3, 5 og 7

201808028

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hafnar erindinu en ítrekar að þegar til framkvæmda verður gengið á þessum stað verði gætt að því að frágangur á svæðinu verði í samræmi við gildandi skipulag þannig að gróður dempi hugsanlega hljóðmengun frá vellinum en jafnframt verði rask á svæðinu eins lítið og mögulegt er.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

19.Breyting á deiliskipulagi Flugvallar

201802076

Umhverfis- og framkvæmdanefnd frestar erindinu til að færi gefist til nánari úrvinnslu þeirra athugasemda sem borist hafa.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

20.Miðbær Egilsstaða deiliskipulag 2016.

201401135

Farið var yfir deiliskipulag miðbæjarins eins og það var kynnt á fundi nefndarinnar 27. júní sl. Málið áfram í vinnslu.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni þessarar síðu?