Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdanefnd

63. fundur 08. febrúar 2017 kl. 17:00 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Árni Kristinsson formaður
  • Guðrún Ragna Einarsdóttir aðalmaður
  • Ester Kjartansdóttir aðalmaður
  • Þórhallur Borgarson varamaður
  • Benedikt Hlíðar Stefánsson varamaður
  • Vífill Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Vífill Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að tveimur liðum yrði bætt við, Beiðni um skiptingu lands og breytingu á landnotkun/Ketilsstaðir 1 og 2, og Snæfellsskáli deiliskipulag, og verða þeir liðir nr. 16 og 17.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1.Reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit

201701127

Lögð eru fram drög að nýrri reglugerð um starfsemi slökkviliða, til umsagnar.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar hér með eftir umsögn um framkomin drög og að þau berist ráðuneytinu eigi síðar en 10.febrúar 2017.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemdir við drögin, að öðru leiti lagt fram til kynningar.

2.Snæfellsskáli deiliskipulag

201505173

Lagður er fram deiliskipulagsuppdráttur og greinargerð fyrir Snæfellsskála unnin af Mannvit að undangenginni kynningu á tillögu skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 7.9.2016.
Þrjár ábendingar bárust frá Forsætisráðuneytinu með bréfi dagsett 5.október 2016 og ein ábending frá Skipulagsstofnun.

Hjálagt er leiðréttur uppdráttur og greinargerð.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd metur svo að komið hefur verið til móts við þær athugasemdir/ábendingar sem bárust.
Skipulags- og byggingarfulltrúa falin úrvinnsla þess skv.42.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Beiðni um skiptingu lands og breytingu á landnotkun/Ketilsstaðir 1 og 2

201611003

Lögð er skipulagslýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028, Ketilsstaða.
Tillaga að breyttu aðalskipulagi felst í því að breyta landbúnaðarsvæði í verslun- og þjónustusvæði.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrvinnslu í samræmi við 36.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Umsókn um skráningu nýrrar landeignar í fasteignaskrá

201701053

Lagt er fyrir erindi Hafliða P. Hjarðar, kt.120556-5849, Umsókn um skráningu nýrra landaeigna í fasteignaskrá.
Heiti upprunaeignar: Stakkaberg 1, landnr.:201328.
Heiti nýrra landaeigna: Stakkaberg 2.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Umsókn um lóð

201702018

Guðmundur Heiðar Eyþórsson kt. 120983-3189 sækir hér um lóð nr. 2 við Norðurtún á Egilsstöðum.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarumsókn og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn hennar.
Jafnframt minnir nefndin á 12.gr. í samþykkt 668/2015, lið 2.
Lóðarúthlutunargjald greiðist við úthlutun og er óendurkræft, þó úthlutun gangi til baka.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Stofnun lóða - Flugvallarvegur

201605152

Lagt er fyrir erindið Stofnun lóða - Flugvallavegur.
Hermann Hermansson leggur til umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Óskað er eftir að stofna lóð út úr Flugvallarsvæði, landnr.158045 og á sú nýstofnaða lóð að bera heitið Flugvallarvegur 7, mannvirki sem skrá á á nýju lóðina er 217-6332 21-0101.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Starfsáætlun umhverfis- og framkvæmdanefndar 2017

201701118

Lögð er fyrir starfsáætlun Umhverfis- og framkvæmdanefndar 2017.

Í vinnslu.

8.Skólabrún deiliskipulag

201309047

Lagt er fyrir nefndina drög að breyttu deiliskipulagi fyrir Brúnir II í Fellabæ.
Eldra deiliskipulag var samþykkt af sveitarstjórn Fellahrepps þann 13.mars 2002.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Brúnir II nær yfir þegar byggða götu Dalbrúnar og Selbrún, sem þekkt er sem Skólabrún í eldra skipulagi.
Skipulagsskilmálar Dalbrúnar eru endurnýjaðir og hreinskrifaðir.
Skipulagsskilmálar fyrir Selbrún taka breytingum þar sem bæði fjöldi íbúða og tegund þeirra breytast.
Þar sem áður var gert ráð fyrir 6 einbýlishúsum er nú gert ráð fyrir par-, rað-/fjöleignahúsum, allt að 18 íbúðum.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi skv.41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Þórhallur Borgarsson vék af fundi 19:45.

9.Samþykkt um þjónustugjöld byggingafulltrúa

201611127

Lögð er fyrir nefndina Samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og þjónustugjöld byggingarfulltrúa á Fljótsdalshéraði, nr.668/2015, ásamt skýrslu um lausar lóðir til umfjöllunar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir þær breytingar sem lagðar eru til á Samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og þjónustugjöld byggingarfulltrúa á Fljótsdalshéraði og leggur til að auglýsa hana að nýju í B-deild stjórnartíðindum.

Jafnframt leggur nefndin til að lækkuð verði gatnagerðargjöld sem nemur 50% af eftirfarandi lóðum með tilvísun í 6.gr. samþykktar 668/2015:
- Dalsel 1,3,5
- Dalsel 2,4,6
- Hamrar, af öllum óbyggðum lóðum.
- Bláargerði, á óúthlutuðum lóðum 1-69 og 4-38.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Fundargerðir Náttúrustofu Austurlands 2017

201702023

Lögð er fundargerð Náttúrustofu Austurlands, 1.fundar 2017 til kynningar.

Fundargerð lögð fram til kynningar.

11.Refaveiðisamningar 2017

201701146

Lagðir eru fram Refaveiðisamningar 2017 fyrir til kynningar.

Lagt fram til kynningar.

12.Lausar lóðir, yfirferð 2017

201701160

Lagt er fyrir nefndina yfirlit yfir lausar lóðir á Fljótsdalshéraði ásamt jarðkönnun á Suðursvæði.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að birta lista yfir lausar lóðir á heimasíðu sveitarfélagsins.

Jafnframt felur nefndin Skipulags- og byggingarfulltrúa að taka saman lista yfir lóðir sem þarf að innkalla og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

13.Beiðni um lóðaleigusamning vegna Sigurðarskála í Kverkfjöllum

201603007

Á fundi Umhverfis- og framkvæmdanefndar nr. 60 var Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að óska eftir stöðu mála hjá Forsætisráðuneytinu.

Fyrir liggur svar Forsætisráðuneytisins við bréfi Skipulags- og byggingarfulltrúa ásamt umsögn Jón Jónssonar hrl. á bréfi Forsætisráðuneytisins.

Með vísan í umsögn Jón Jónssonar hrl. þá felur Umhverfis- og framkvæmdanefnd Skipulags- og byggingarfulltrúa að upplýsa Ferðafélag Fljótsdalshéraðs um að með breytingum á lögum þá er það ekki hlutverk sveitarfélagsins að gera lóðarleigusamninga innan þjóðlendna í Vatnajökulsþjóðgarði.
Umsækjandi verði því að snúa sér til Vatnajökulsþjóðgarðs.

Jafnframt er Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að fá svör við eftirfarandi spurningum frá Vatnajökulsþjóðgarði og Samráðsnefndar um þjóðlendumál:

A. Á sveitarfélag að gera lóðarsamning vegna húseigna/framkvæmda Vatnajökulsþjóðgarðs í þjóðlendu sem er innan þjóðgarðsmarka?
B. Á sveitarfélag að gera lóðarsamning vegna húseigna(framkvæmda þriðja aðila ,t.d. félagssamtaka), innan þjóðlendu sem er innan þjóðgarðsmarka?
C. Á sveitarfélag rétt til greiðsla fyrir lóðarleigu vegna landnota í þjóðlendu skv. liðum A og B hér að framan? Á þjóðgarðurinn rétt til slíkra greiðslna?
D. Með hvaða hætti á Vatnajökulsþjóðgarður að afmarka lóðir sem hann leggur undir mannvirki í skilningi laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna?.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

14.Breytingar á aðalskipulagi Breiðdalshrepps - til umsagnar

201701143

Lögð er fram skipulagslýsing vegna aðalskipulags Breiðdalshrepps 2016-2036, til umsagnar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemdir við skipulagslýsinguna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

15.Br.deiliskipulag f. Unalæk

201702029

Lagt er fyrir erindi Þórhalls Pálssonar fyrir hönd lóðarhafa, um breytingar á deiliskipulagi fyrir Unalæk A6 og B2.
Óskað er eftir að breyta greinargerð skipulags, heimila sölu gistingar á lóðunum Unalækur A6 og B2.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd metur svo að um óverulega breytingu á deiliskipulagi Unalækjar sé að ræða.
Skipulags- og byggingarfulltrúa er falin úrlausn málsins skv. 44.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar sbr. 3.mgr.44.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

16.Miðbær Egilsstaða deiliskipulag 2016

201401135

Lögð eru fram drög að breyttu deiliskipulagi fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd til kynningar á framvindu verksins.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna framvindu verksins fyrir vinnuhóp.
Að öðru leiti lagt fram til kynningar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

17.Landbótasjóður 2017

201701148

Lagðar eru fundargerðir Landbótasjóðs nr. 80 og 81, dagsettar 16.12.2016 og 24.1.2017 til kynningar.

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni þessarar síðu?