-
Bókun fundar
Yfirmaður eignasjóðs mætti á fund umhverfis- og framkvæmdanefndar og kynnti uppfærð gögn og afstöðu Brunavarna á Austurlandi til fyrirliggjandi útfærslu á flóttaleið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og telur ekki forsendur til að vinna verkefnið áfram að svo stöddu.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Auglýsingu er lokið en frestur til að skila inn umsögnum eða athugasemdum var til 4. ágúst. Ein athugasemd var tekin fyrir á síðasta fundi nefndarinnar og var skipulagsráðgjafa falið að gera tillögu að svörum við henni og liggja drög að svörum fyrir fundi bæjarstjórnar. Fyrir fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar lá einnig umsögn Minjastofnunar frá því við fyrri auglýsingu skipulagsins. Skipulags- og byggingarfulltrúi, ásamt ráðgjöfum, hefur fundað með Skipulagsstofnun vegna málsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að óska eftir heimild Skipulagsstofnunar til að auglýsa fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að sækja um undanþágu til Minjastofnunar vegna fornleifaskráningar og húsakönnunar sem liggur ekki fyrir, en verður unnin á næstu mánuðum.
Bæjarstjórn samþykkir þau drög að svörum við athugasemdum sem skipulagsráðgjafi hefur tekið saman og gerir þau að sínum.
Að teknu tilliti til þess sem að framan greinir samþykkir bæjarstjórn fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi miðbæjar og felur skipulags- og byggingafulltrúa að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Verkefnislýsing fyrir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 var auglýst þann 16. júlí 2020 og var frestur til að skila umsögnum og koma á framfæri ábendingum til 10. ágúst. Ein umsögn, frá Náttúrufræðistofnun Íslands, var tekin fyrir á síðasta fundi nefndarinnar, en nú liggja fyrir þrjár aðrar umsagnir, frá Umhverfisstofnun, Minjastofnun og landeigendum. Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir þær umsagnir og athugasemdir sem hafa borist.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að vísa erindinu til skipulagsráðgjafa til úrvinnslu.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu, en einn var fjarverandi (G.J.)
-
Bókun fundar
Á fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar fór skipulags- og byggingarfulltrúi yfir stöðu málsins. Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur, ásamt skipulagsráðgjöfum og fulltrúa Isavia, fundað með Skipulagsstofnun vegna málsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi fyrir flugvöllinn dags. 13.3.2020 verði auglýst að nýju ásamt umhverfisskýrslu.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu, en einn var fjarverandi (G.J.)
-
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið, en bendir á að sækja þarf um starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið. Áskilið er að framkvæmdaraðili kynni verkefnið fyrir Minjastofnun.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni, efnistaka við Mjóafjarðarveg.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að skoða aðra möguleika með Vegagerðinni um malarnám úr opnum námum á aðalskipulagi.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Til umsagnar er verkefnislýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi verkefnislýsingu.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
3.11
202008029
Fjallskil 2020
Bókun fundar
Ganga þarf frá ráðningu fjallskilastjóra á Jökuldal norðan ár og í Jökulsárhlíð. Einnig liggja fyrir leiðbeiningar og gátlisti varðandi Covid-19 og göngur og réttir.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og þakkar Benedikt Arnórssyni hans störf sem fjallskilastjóri á Jökuldal norðan ár og í Jökulsárhlíð og samþykkir jafnframt að ráða Árna Jón Þórðarson í hans stað. Verkefnastjóra umhverfismála falið að kynna fjallskilastjórum leiðbeiningar og gátlista varðandi Covid-19.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Umsókn um byggingarleyfi við Tjarnarbraut 11. Grenndarkynning hefur farið fram og er án athugasemda.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Óskað er eftir bættri aðstöðu fyrir frisbígolf.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd, þakkar erindið og bendir á að í vinnslutillögu deiliskipulags fyrir Selskóg sem nú er í kynningu, er gert ráð fyrir mögulegu svæði fyrir frisbígolf. Nánari útfærslu þarf að vinna í samráði við áhugasama aðila og íþrótta- og tómstundanefnd.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggja upplýsingum um þekktar miltisbrandsgryfjur innan sveitarfélagsins og ósk um að upplýsingum um þær verði bætt inn á aðalskipulag Fljótsdalshéraðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og samþykkir að vísa erindinu til skipulagsráðgjafa aðalskipulags til úrvinnslu og jafnframt að þessar upplýsingar verði færðar inn í skipulagsgögn við næstu endurskoðun.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.