1.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 509
2004002F
1.1
202001001
Fjármál 2020
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs felur bæjarstjórn bæjarstjóra að undirrita fyrirliggjandi samning við Krabbameinsfélag Íslands um ráðgjöf og forvarnir gegn krabbameini á Austurlandi. Bæjarstjórn fagnar því að Krabbameinsfélag Íslands skuli nú staðsetja starfsmann á Austurlandi til að sinna þessari þjónustu.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
2.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 130
2004004F
-
Bókun fundar
Fyrir umhverfis- og framkvæmdanefnd lá að bregðast við ástandi á sauðfjárveikvarnargirðingum. Þorsteinn Bergsson dýraeftirlitsmaður hjá MAST mætir á fundinn og fór yfir ástand girðinga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og fer fram á það við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að veita fé til viðgerða á varnargirðingu á svonefndri Reyðarfjarðarlínu (nr. 20 skv. auglýsingu nr. 88/2018) sem aðskilur Austfjarða- og Suðurfjarðahólf, þannig að ljúka megi þeim fyrir 15. júní 2020. Ljóst er að sjúkdómastaða sauðfjársjúkdóma í Austfjarða- og Suðurfjarðahólfi er ekki hin sama og því skylt að halda varnarlínunni við skv. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Samkvæmt sömu grein skal ríkissjóður greiða kostnað við viðhald svonefndra aðalvarnarlína og er Reyðarfjarðarlína ein þeirra.
Bæjarstjórn bendir á auk þess að vera nauðsynleg aðgerð geti verið skynsamlegt að ráðast í verkefnið nú í ljósi atvinnuástands og að ef til vill sé unnt að skapa sumarstörf í tengslum við viðhald girðingarinnar og annarra girðinga á svæðinu.
Verði ekki brugðist við af hálfu ráðuneytisins telur bæjarstjórn ljóst, þar sem hlutar girðingarinnar eru orðnir hættulegir búfé, villtum dýrum og fólki eins og þeir eru, að sveitarfélaginu sé þar með skylt að láta fjarlægja áðurnefnda hluta girðingarinnar á kostnað ríkissjóðs, meðal annars með vísan til 2. mgr. 8. gr. girðingarlaga nr. 135/2001.
Sveitarfélagið harmar ef til þess þarf að koma að gripið verði til ofangreindra ráðstafana, en vegna alvarlegrar vanrækslu á viðhaldi girðingarinnar undanfarin ár, er sóttvarnagildi hennar hvort sem er ekki til staðar.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu vatnslagnar fyrir starfsmannaaðstöðu og móttöku ferðamanna við Kárahnjúka.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn framkvæmdaleyfi fyrir slóða að vatnsbóli, lagningu á neysluvatnslögn og starfsmannaaðstöðu við Kárahnjúka. Vakin er athygli á því að starfamannaaðstaða kann að vera háð umsögnum og leyfum frá bæði Vinnueftirliti og HAUST.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Umhverfis- og framkvæmdanefnd tók til umræðu framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara meðfram Votahvammi, sem tengir Ártröð og Brávelli.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn lagningu ljósleiðara meðfram Votahvammi sem tengir Ártröð og Brávelli. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði háð samningi um nýtingu lands og skilmálum um legu og frágang lagna og að samningurinn verði tímabundinn með uppsagnarákvæði.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Umsókn um skráningu nýrra landeignar í fasteignaskrá úr landi Stórhöfða.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að heimila skráningu nýrrar landeignar og veitir jákvæða umsögn um landskipti.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
3.Atvinnu- og menningarnefnd - 102
2004003F
-
Bókun fundar
Fyrir liggja drög að samningi við Te og tré (Halldór Warén) um rekstur og framkvæmd Ormsteitis 2020.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn fyrirliggjandi samningsdrög og felur starfsmanni nefndarinnar að gagna frá samningnum til undirritunar.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla atvinnu- og menningarnefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur erindi frá Benedikt Warén um að ályktað verði um að ekki verði braskað með hreinleika orku. Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 24. febrúar 2020.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að beita sér fyrir því að endurgjald vegna hreinleika orku renni til þeirra sveitarfélaga, sem sannanlega geta gefið út staðfestingu á því að orkan sé framleidd í því á vistvænan, endurnýjanlegan hátt.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
4.Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 88
2003021F
4.1
202003114
BRAS 2020
Bókun fundar
Afgreiðsla ungmennaráðs staðfest.
4.2
202003069
Viðbragðsáætlun Fljótsdalshéraðs við heimsfaraldri inflúensu
Bókun fundar
Fyrir ungmennaráði lá viðbragðsáætlun Fljótsdalshéraðs við heimsfaraldri inflúensu.
Ungmennaráð minnir á að líklegt er að ungmenni fái ekki í jafn ríkum mæli störf í ferðaþjónustu og annarri þjónustu í ár, líkt og verið hefur, og vonar að sveitarfélagið leitist við að veita sem flestum ungmennum störf í sumar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að vísa ábendingu ungmennaráðs til undirbúningsvinnu við aðgerðir til viðspyrnu fyrir atvinnulífið í sveitarfélaginu í kjölfar COVID-19.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
4.3
200812035
Miðbær Egilsstaða
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að svara fyrirspurnum ungmennaráðs.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
4.4
202003125
Áskorun á bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að vísa hugmyndum að aðgerðum, sem ungmennaráð leggur til að bæjarstjórn Fljótsdalshérað taki til skoðunar, til undirbúningsvinnu við aðgerðir til viðspyrnu fyrir atvinnulífið í sveitarfélaginu í kjölfar COVID-19.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
5.Fundur með fulltrúum Vegagerðarinnar
6.Fundir bæjarstjórnar 2020
7.Hugmyndir og ábendingar að aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
8.Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfi til sölu gistingar - Gistiheimilið Fjalladýrð
Fundi slitið - kl. 18:30.