Fara í efni

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

307. fundur 05. febrúar 2020 kl. 17:00 - 19:00 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Anna Alexandersdóttir 1. varaforseti
  • Kristjana Sigurðardóttir 2. varaforseti
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Björg Björnsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hannes Karl Hilmarsson bæjarfulltrúi
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Karl Sigfús Lauritzson varamaður
  • Guðfinna Harpa Árnadóttir varamaður
  • Sigrún Blöndal varamaður
  • Stefán Snædal Bragason bæjarritari
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason bæjarritari

1.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 497

2001014F

Til máls tóku: Anna Alexandersdóttir sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum og Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 1.5.

Fundargerðin lögð fram.

2.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 498

2001017F

Fundargerðin lögð fram.

3.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 499

2001022F

Til máls tók: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.
  • 3.1 202001001 Fjármál 2020
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Berglind Harpa Svavarsdóttir, formaður undirbúningsnefndar fyrir leikskólabyggingu í Fellabæ mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið og fór yfir vinnu og hugmyndir sem ræddar hafa verið og upplýsti fundarmenn um stöðuna.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og beinir því til byggingarnefndar að leikskóli sá sem byggður verður hýsi þrjár deildir. Ekki sé ástæða til að gera ráð fyrir stækkun byggingarinnar.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að óska eftir því við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að uppfærsla húsnæðisáætlunar Fljótsdalshéraðs eigi sér stað að lokinni fyrirhugaðri sameiningu og yrði þá gefin út sameiginlega fyrir nýtt sveitarfélag.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
  • Bókun fundar Á fundi bæjarráðs þann 20. janúar kynntu fulltrúar frá HSA, þeir Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga og Guðjón Hauksson forstjóri, hugmyndir um samstarf sveitarfélagsins og HSA um heilsueflingu. Þær hugmyndir byggjast á verkefni sem nefnist „Positive Health“ og áhuga HSA á því að vinna að því í samstarfi við lýðheilsustofnunina iPH í Hollandi og við þau sveitarfélög á Austurlandi sem hafa gefið sig út sem heilsueflandi sveitarfélög.
    Bæjarráð samþykkti af því tilefni að stefna að slíku samstarfi.
    Á fundi bæjarráðs þann 3. febrúar lágu síðan fyrir drög að samstarfssamningi um verkefnið milli framangreindra aðila. Bæjarráð óskaði eftir því að gerðar yrðu tilteknar breytingar á þeim drögum en veitti bæjarstjóra heimild til að undirrita samninginn að þeim breytingum gerðum.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og samþykkir að taka þátt í verkefninu miðað við að kostnaður Fljótsdalshéraðs vegna þess árið 2020 verði, miðað við núverandi gengi gjaldmiðla, að hámarki á bilinu 400-600 þúsund krónur og að kostnaður sameinaðs sveitarfélags við verkefnið í framhaldi, miðað við sömu forsendur, verði að hámarki á bilinu 800-900 þúsund krónur árlega.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Á fundi bæjarráðs var farið yfir reynslu af mætingu íbúa í samfélagssmiðjuna síðustu mánuði og tillögur að viðverutíma út frá henni.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að tímabilið febrúar til og með apríl, verði föst viðvera bæjarfulltrúa og starfsmanna í samfélagssmiðjunni á fimmtudögum frá kl. 14:00 til kl. 18:00. Einnig verði leitast við að tryggja viðveru í tengslum við aðra viðburði í húsinu þegar það kann að henta.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

4.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 125

2001012F

Til máls tók: Guðfinna Harpa Árnadóttir sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

5.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 284

2001013F

Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 5.3. og Anna Alexandersdóttir, sem ræddi lið 5.3. Sigrún Blöndal, sem ræddi lið 5.3. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 5.3. Björn Ingimarsson, sem ræddi lið 5.3. Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem ræddi lið 5.3. Sigrún Blöndal, sem ræddi lið 5.3. Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem ræddi lið 5.3. Karl Lauritzson, sem ræddi lið 5.3 og bar fram fyrirspurn og Björg Björnsdóttir, ræddi lið 5.3 og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Ruth Magnúsdóttir, skólastjóri Egilsstaðaskóla, mætti á fund nefndarinnar og minnti á fyrri bókun fræðslunefndar varðandi uppbyggingu á upplýsingatækni í grunnskólum frá 22. október sl. Fræðslunefnd ítrekar fyrri niðurstöðu nefndarinnar og leggur áherslu á að uppbygging tækni í skólum sameinaðs sveitarfélags verði sett í algjöran forgang við skiptingu fjármagns frá Jöfnunarsjóði til innviða, sem og fjölgun starfsfólks við upplýsingatækni á miðlægu sviði til að sinna þjónustu við skólastofnanir.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn samþykkir að beina því til undirbúningsstjórnar um sameiningu sveitafélaga að taka framangreindar áherslur til skoðunar við skipulag þróunarverkefna samhliða sameiningu sveitarfélaganna.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

6.Atvinnu- og menningarnefnd - 97

2001003F

Til máls tóku: Gunnhildur Ingvarsdóttir sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum og Kristjana Sigurðardóttir, sem ræddi lið 6.5.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Fyrir liggja drög að samningi milli Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshéraðs um Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs með sviðslistauppbyggingu sem áherslu.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn fyrirliggjandi samning.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Fyrir liggur fundargerð stjórnar Minjasafns Austurlands frá 26. nóvember 2019. Við umfjöllun um hana kom fram að atvinnu- og menningarnefnd telur brýnt að fundin verði framtíðarlausn á varðveisluhúsnæði fyrir muni safnsins.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að láta vinna, í samráði við fulltrúa Minjasafns Austurlands, úttekt á mögulegum framtíðarlausnum hvað varðar varðveislu safngripa.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar felur bæjarstjórn starfsmanni að gera drög að samningi við Leikfélag Fljótsdalshéraðs um styrk vegna félags- og geymsluaðstöðu sem gildi út árið 2021.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Fyrir nefndinni lá tölvupóstur dagsettur 3. janúar 2020 frá Steingrími Karlssyni, þar sem reifaðar eru hugmyndir um greiðfæra hringleið frá Egilsstöðum um Jökuldal að Kárahnjúkum og þaðan niður í Fljótsdal til Egilsstaða. En með þessari leið mætti tengja saman nokkrar af helstu náttúruperlum svæðisins og gera mjög áhugaverða ferðaleið.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram.
    Bæjarstjórn er sammála atvinnu- og menningarnefnd, tekur undir þessar hugmyndir og leggur til við bæjarráð að málið verði tekið upp við hagsmunaaðila, Vegagerðina og þingmenn.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Afgreiðsla atvinnu- og menningarnefndar staðfest.

7.Íþrótta- og tómstundanefnd - 59

2001008F

Til máls tók: Berglind Harpa Svavarsdóttir sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókun.

Fundargerðin lögð fram.

8.Náttúruverndarnefnd - 16

2001010F

Til máls tóku: Guðfinna Harpa Árnadóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 8.5 og bar fram fyrirspurn. Guðfinna Harpa Árnadóttir, sem ræddi lið 8.5 og svaraði fyrirspurn. Björn Ingimarsson, sem ræddi lið 8.5 og svaraði fyrirspurn. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 8.5 og þakkaði veitt svör og gerði tillögu að viðbót við fyrirliggjandi bókun og Anna Alexandersdóttir, sem ræddi lið 8.5.

Fundargerðin lögð fram.
  • 8.1 201906103 Starfs- og fjárhagsáætlun náttúruverndarnefndar 2020
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • 8.2 201911016 Fundargerð starfshóps um Úthéraðsverkefni
    Bókun fundar Á fundi náttúruverndarnefndar var rætt um útmörk þess svæðis sem unnið verður með í Úthéraðsverkefninu.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með náttúruverndarnefnd og telur að skynsamlegt sé að halda áherslu verkefnisins fyrst og fremst á votlendissvæði yst á Héraði auk fjalllendis austan og norðan megin Héraðs og út á annes.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

    Fundargerð starfshópsins lögð fram til kynningar að öðru leyti.
  • 8.3 201902089 Friðlýsingar á Fljótsdalshéraði
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • 8.4 201910190 Stórurð til framtíðar. Ástandsúttekt og framtíðarsýn
    Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir bókun Náttúruverndarnefndar og lýsir yfir ánægju sinni með skýrslur landvarða og þá vinnu sem unnin hefur verið. Einnig tekur bæjarstjórn undir með nefndinni og leggur áherslu á að framhald verði á verkefninu.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • 8.5 201905175 Fundur Fljótsdalsstöðvar og Fljótsdalshéraðs 2019
    Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með náttúruverndarnefnd og telur ástæðu til að hafa áhyggjur af landbroti á Víðum og Víðihólmum, sem er svæði á náttúruminjaskrá. Einnig sé ástæða til að skoðað verði hvort landbrot á sér stað á bökkum Lagarfljóts í Húsey, sem einnig er á náttúruminjaskrá
    og er því beint til Landgræðslunnar.
    Bæjarstjórn beinir því til Landsvirkjunar að horft verði sérstaklega til að vernda svæði á náttúruminjaskrá fyrir landbroti sem til er komið vegna aukins vatnsmagns í Lagarfljóti eftir virkjanaframkvæmdir við Kárahnjúka.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • 8.6 201909068 Umsókn um styrk til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða 2019
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 8.7 201910122 Ársfundur Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa
    Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með náttúruverndarnefnd og vill fyrir hönd Fljótsdalshéraðs þakka Umhverfisstofnun og öllum fundargestum fyrir komuna og lýsir yfir ánægju með efni fundarins og þær umræður sem þar fóru fram.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • 8.8 201910118 Ársskýrsla loftgæða til ársins 2017
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 8.9 201711050 Þjóðgarður á miðhálendi Íslands
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • 8.10 201808014 Þjóðgarðastofnun
    Bókun fundar Í vinnslu.

9.Félagsmálanefnd - 180

1912016F

Til máls tóku: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir, sem ræddi liði 9.3 og 9.6. Anna Alexandersdóttir, sem ræddi liði 9.6 og 9.3. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 9.6 og kynnti viðbót við fyrirliggjandi tillögu og Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem ræddi lið 9.3.

Fundargerðin lögð fram.
  • 9.1 201910145 Styrkbeiðni Stígamóta fyrir árið 2020
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • 9.2 202001114 Erindi frá Réttindagæslumanni fatlaðs fólks, Bláargerði 9
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • 9.3 202001115 Samvinna eftir skilnað - SES/Félagsleg ráðgjöf
    Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með félagsmálanefnd og samþykkir að ganga til samstarfs og samninga við félags- og barnamálaráðuneytið ásamt dómsmálaráðuneytinu um forvarnarstarf í þágu barna og barnafjölskyldna í skilnaðarferli. Verklagið er í samhljómi við yfirlýsta stefnu og markmið Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs hvað varðar bætta stöðu barna, með snemmtækri íhlutun og forvarnarstarfi.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • 9.5 202001119 Fræðslufundur um sáttmála SÞ um réttindi fatlaðs fólks
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 9.6 202001120 Erindi einstaklinga - frá bæjarstjórnarbekk
    Bókun fundar Í félagsmálanefnd var tekið fyrir erindi af bæjarstjórnarbekk þess efnis að afsláttarviðmið fasteignaskatts fyrir tekjulága elli- og örorkulífeyrisþega væru of lág.
    Um er að ræða heimild í tekjustofnalögum sem hvert sveitarfélag getur nýtt, samkvæmt sérstökum samþykktum reglum þar um og skal hver sveitarstjórn árlega ákveða þau tekjuviðmið og hámarksafslátt sem gildir viðkomandi ár.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með félagsmálanefnd og bendir á að ákvörðun um breytingar á viðmiðunarmörkum er tekin árlega, samhliða fjárhagsáætlunargerð og hefur því þegar verið samþykkt fyrir árið 2020.
    Bæjarstjórn vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.


  • 9.7 201912047 Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 2020
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • 9.8 201712031 Skýrsla Félagsmálastjóra
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
Í fundargerð félagsmálanefndar var liður nr. 4 á dagskrá trúnaðarmál og birtist því ekki sem liður 9.4 í þessari fundargerð.

Fundi slitið - kl. 19:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?